Guardiola pirraður: „Við vorum frábærir í vörn og sókn“ Sindri Sverrisson skrifar 7. janúar 2026 22:53 Pep Guardiola og hans menn í Manchester City gætu verið komnir átta stigum á eftir toppliði Arsenal annað kvöld. GettyGeorge Wood Titilvonir Manchester City hafa dvínað mikið með þremur jafnteflum í röð og var Pep Guardiola síður en svo hress í viðtali eftir 1-1 jafnteflið við Brighton í kvöld, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Úrslitin þýða að Arsenal getur með sigri í stórleiknum gegn Liverpool annað kvöld náð átta stiga forskoti á City og Aston Villa á toppi deildarinnar, sem skýrir af hverju Guardiola var oft ansi stuttur í spunann í viðtalinu eftir leik. „Úrslitin eru eins og þau eru og þetta var svipað og í síðustu tveimur leikjum. Við spiluðum stórkostlega og orkan var mikil síðustu 15-20 mínúturnar en við klikkuðum á mörgum færum. Þetta eru sanngjörn úrslit því það er hluti af leiknum að skora mörk og við gerðum það ekki,“ sagði Guardiola. Aðspurður hvort það hefði áhrif á menn í færunum hve mikið væri í húfi, nú þegar liðið mætti illa við að misstíga sig, svaraði Spánverjinn stutt: „Við skoruðum ekki. Það er allt og sumt.“ Hann vildi heldur ekkert vera að kenna um miklum forföllum í vörninni: „Vandamálið er ekki í vörninni. Við skoruðum ekki úr færunum sem við fengum, eins og í síðustu leikjum.“ Spyrillinn spurði þá hvort að menn þyrftu ekki að reyna að halda ró sinni og hélt Guardiola að spurningin beindist að honum sjálfum: „Ég mun ekkert breytast. Ég er of gamall.“ En hvað með leikmennina? „Leikmennirnir stóðu sig frábærlega. Ég elska hvernig við spiluðum. Við vorum frábærir í vörn og sókn, en við skoruðum ekki.“ En er City enn með í titilbaráttunni? „Við höfum ekki unnið í síðustu þremur leikjum og þá verður þetta erfiðara en við höldum bara áfram,“ sagði Guardiola og var þá byrjaður að andvarpa nokkuð og gaf lítið af sér í lokaspurningunum.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fleiri fréttir Newcastle - Bournemouth | Halda norðanmenn uppteknum hætti? Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag Sjá meira