Brassinn var áfram í stuði þegar Brentford afgreiddi Everton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2026 16:59 Igor Thiago fagnar öðru marka sinna fyrir Brentford í dag en hann er kominn með þrettán mörk í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Getty/ Jan Kruger Brentford vann sannfærandi útisigur á Everton í Bítlaborginni í kvöld og er komið upp í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Newcastle vann Crystal Palace fyrir norðan.
Brasilíumaðurinn Igor Thiago hefur farið á kostum hjá Brentford á þessu tímabili og hann bætti þremur mörkum við safnið í 4-2 útisigri á Everton. Thiago er kominn með fjórtán deildarmörk og er næstmarkahæstur í deildinni. Everton-menn eru að gefa eftir en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum og er komið niður í þrettánda sæti deildarinnar. Thiago kom Brentford í 1-0 á 11. mínútu og skoraði síðan einnig þriðja markið á 51. mínútu. Nathan Collins skallaði inn annað markið mínútu fyrir það þriðja. Beto minnkaði muninn á 66. mínútu þegar hann skallaði inn fyrirgjöf Jack Grealish. Thiago kórónaði síðan daginn og þrennuna með fjórða marki Brentford undir lok leiksins. Grealish lagði upp mark fyrir Thierno Barry undir lokin og munurinn var því á endanum bara tvö mörk. Tottenham náði ekki að vinna sinn fyrsta sigur á nýju ári þegar liðið missti niður forystu í 1-1 jafntefli á móti Sunderland. Sunderland hefur verið að gera góða hluti á móti stóru liðum deildarinnar og hefur nú leikið fimm leiki í röð án taps. Ben Davies kom Tottenham í 1-0 á 30. mínútu en Brian Brobbey jafnaði metin tíu mínútum fyrir leikslok. Bruno Guimaraes (á 71. mínútu) og Malick Thiaw (á 78. mínútu) tryggðu Newcastle 2-0 sigur á Crystal Palace mörkum með sjö mínútna millibili á lokahluta leiksins. Newcastle er í níunda sæti og nú aðeins stigi á eftir nágrönnum sínum í Sunderland.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Newcastle United Brentford FC Everton FC Sunderland AFC Crystal Palace FC Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira