Ungur varnarmaður sagður á leið til Liverpool Valur Páll Eiríksson skrifar 2. janúar 2026 10:00 Ordonez í baráttunni við Gabriel Jesus í Meistaradeildinni í desember. Hann gæti barist við hann í ensku úrvalsdeildinni á nýju ári. Stuart MacFarlane/Arsenal FC via Getty Images Hinn ekvadorski Joel Ordóñez er sagður á leið til Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hyggist þannig fjölga í fámennri varnarsveit liðsins.
Ordóñez er 21 árs gamall miðvörður sem leikur með Club Brugge í Belgíu. Hann hefur leikið með liðinu frá árinu 2023 og varð með því belgískur meistari vorið 2024 og bikarmeistari síðasta vor. Hann hefur verið lykilmaður hjá liðinu þrátt fyrir ungan aldur og samhliða því leikið 14 landsleiki fyrir ekvadorska landsliðið. Liverpool hefur elst við Marc Guéhi, varnarmann Crystal Palace, síðan síðasta sumar en Lundúnaliðið kom í veg fyrir sölu hans til Bítlaborgarinnar á lokadegi félagsskiptagluggans í haust. Guéhi klárar samning sinn hjá Palace í sumar en er sagður vilja klára tímabilið með liðinu og finna sér nýtt félag í júlí fremur en nú í janúar. Chelsea, Bayern Munchen og Real Madrid hafa auga á Guéhi en stjórnarmenn Liverpool eru sagðir bjartsýnir að fá hann frítt næsta sumar þrátt fyrir áhuga annarsstaðar frá. Varnarlína liðsins er þunnskipuð en þeir Virgil van Dijk og Ibrahima Konaté hafa spilað flestalla leiki í miðvarðarstöðunni. Að Joe Gomez undanskildum er fátt um varaskeifur. Ítalinn ungi Giovani Leoni kom til Liverpool frá Parma í sumar en hann sleit krossband í deildabikarleik í haust og spilar ekki meira á leiktíðinni. Orðrómar um komu Ordóñez til að fjölga kostum Púllara í varnarlínunni hafa orðið sífellt háværari í breskum fjölmiðlum, til að mynda hjá Sky Sports. Mirror fullyrðir að gengið verði frá kaupunum á næstu dögum. Fregnir af kaupverði eru breytilegar en sagt er að Liverpool muni greiða Club Brugge á bilinu 35 til 45 milljónir punda fyrir þjónustu Ekvadorans.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fleiri fréttir Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Newcastle - Bournemouth | Halda norðanmenn uppteknum hætti? Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Sjá meira