Biðin mikla hjá Unai Emery tók aðeins nokkrar sekúndur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. janúar 2026 18:02 Unai Emery og Mikel Arteta heilsuðust fyrir leikinn en þeir náðu ekki að endurtaka það eftir hann. Getty/David Price Unai Emery knattspyrnustjóri Aston Villa neitaði því að hafa sniðgengið Mikel Arteta, stjóra Arsenal, eftir leik Aston Villa og toppliðs ensku úrvalsdeildarinnar á Emirates-leikvanginum.
Myndir náðust af Arteta grípa í tómt þegar hann ætlaði að þakka fyrir leikinn en þær segja ekki nærri því alla söguna að mati Emery. Ellefu leikja sigurgöngu Villa lauk á þriðjudagskvöldið þegar Arsenal fór á kostum og vann 4-1 sigur eftir að hafa átt frábæran seinni hálfleik. Mikel Arteta was wondering where Unai Emery was. pic.twitter.com/Hb87o8ktXx— The Nomad Post. (@the_nomad_post) December 30, 2025 Fjögur mörk í seinni hálfleik frá Gabriel Magalhães, Martín Zubimendi, Leandro Trossard og Gabriel Jesus tryggðu skytturnum fimm stiga forystu á toppi deildarinnar. Ollie Watkins náði að skora sárabótarmark í uppbótartíma en þá voru örlög Villa löngu ráðin. Atvikið sem um ræðir átti sér stað skömmu eftir leikslok þegar Emery sást flýta sér inn í göngin án þess að takast í hendur við Arteta, eins og venja er meðal knattspyrnustjóra eftir leik. Þegar Emery var spurður út í þennan meinta sniðgang útskýrði hann ákveðið: „Já, en þetta er einfalt. Þið getið horft á þetta sjálf. Eftir leik er rútínan mín alltaf sú að flýta mér, þakka hinum stjóranum fyrir leikinn og fara til þjálfaranna minna, leikmannanna minna eða inn í búningsklefa,“ sagði Emery. „Og ég beið og ég beið. Auðvitað var hann ánægður og var með þjálfurunum sínum og ég ákvað að fara inn. En fyrir mér er þetta ekkert vandamál,“ sagði Emery. Þrátt fyrir að Arteta hafi sést bíða eftir Emery við hliðarlínuna eftir leikinn sagði hann að handabandið sem ekki varð af væri ekki vandamál. „Nei, það er allt í lagi. Þetta er hluti af leiknum, ekkert mál,“ sagði knattspyrnustjóri Arsenal á blaðamannafundi. Eins og sjá má hér fyrir ofan og neðan þá var biðin mikla hjá Unai Emery í raun aðeins nokkrar sekúndur því hann strunsaði nánast strax inn í klefa. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Enski boltinn Arsenal FC Aston Villa FC Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Fleiri fréttir Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Sjá meira