Isiah Whitlock Jr. látinn Eiður Þór Árnason skrifar 31. desember 2025 09:44 Isiah Whitlock Jr. í júní 2022 við frumsýningu Lightyear úr smiðju Disney og Pixar í El Capitan Theatre í Los Angeles. EPA/Nina Prommer Bandaríski leikarinn Isiah Whitlock Jr. er látinn, 71 árs að aldri. Hann var þekktur fyrir eftirminnileg hlutverk í sjónvarpsþáttum á borð við The Wire, Veep og Your Honor, sem og fyrir leik sinn í fjölda kvikmynda með Spike Lee.
Brian Liebman umboðsmaður Whitlock segir í samtali við Deadline að hann hafi kvatt með friðsælum hætti í gær eftir stutta baráttu við veikindi. Hann lést í New York-borg. Whitlock fæddist í borginni South Bend í Indiana-ríki árið 1954 og hóf leiklistarferil sinn þegar hann gekk til liðs við American Conservatory Theatre-leikhúsið í San Francisco að loknu háskólanámi. Vakti hann fyrst landsathygli árið 1987 fyrir gestahlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Cagney & Lacey á CBS, að sögn Deadline. Síðustu 35 ár hefur Whitlock birst reglulega í ýmsu sjónvarpsefni og leikið fjölda gestahlutverka, þar á meðal í Law & Order-seríunum. Vakti athygli í The Wire Whitlock er líklega þekktastur fyrir að hafa leikið spillta þingmanninn R. Clayton Davis í vinsælu sjónvarpsþáttunum The Wire sem framleiddir voru fyrir HBO. Hann lék einnig George Maddox varnarmálaráðherra í pólitísku gamanþáttunum Veep á HBO og var fastagestur í lögfræðispennuþættinum Your Honor þar sem hann lék stjórnmálamann með tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Síðasta sjónvarpshlutverk Whitlocks var í morðgátuþáttaröðinni The Residence á Netflix sem frumsýnd var í mars. Þar brá hann sér í líki lögreglustjóra og lék á móti Uzo Aduba.
Andlát Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira