Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. desember 2025 15:51 Rees var skilin eftir á Eðlueyju við strendur Ástralíu. Getty Ástralskt skemmtiferðaskip, sem er undir rannsókn eftir að hafa skilið konu eftir á eyju þar sem hún lést, hefur nú strandað við strendur Papúa Nýju-Gíneu.
Enginn um borð í skipinu slasaðist þegar skipið strandaði um þrjátíu kílómetrum frá Lae, næst stærstu borg Papúa Nýju-Gíneu. Þá er ekki talið að miklar skemmdir hafi orðið á skipinu en enn er verið að skoða skipið ítarlega. Í umfjöllun The Guardian segir að farþegarnir, sem eru rúmlega 120, hafi verið fluttir á land á meðan unnið er að því að koma skipinu aftur á flot. Um var að ræða skemmtiferðaskip sem ber heitið The Coral Adventurer. Það var í lok október sem áttræð áströlsk kona, Suzanne Rees, fór af stað með skipinu í það sem átti að vera sextíu daga lúxusferðalag umhverfis Ástralíu. Á öðrum degi ferðalagsins var hópurinn í gönguferð á Eðlueyju þegar Rees yfirgaf hópinn og var í kjölfarið skilin eftir á eyjunni. The Coral Adventurer var komið í um hundrað kílómetra fjarlægð frá eyjunni, sem tók um fimm klukkustunda siglingu, þegar skipinu var snúið við til að sækja Rees en lík hennar fannst á eyjunni þann 26. október. Ferðinni var aflýst í kjölfar andlátsins og rannsókn hafin á málinu.
Papúa Nýja-Gínea Ástralía Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira