Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. desember 2025 11:58 Kjartan Már Kjartansson sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Reykjanesbær Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, mun ekki sækjast eftir bæjarstjórasætinu eftir sveitarstjórnarkosningarnar á næsta ári. Hann ræddi bæjarstjórastarfið og krabbameinsgreininguna í Einmitt.
Kjartan Már var viðmælandi í hlaðvarpsþættinum Einmitt og greindi þar frá að hann sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri. Hann hyggst starfa út kjörtímabilið en lýkur störfum í kjölfar sveitarstjórnarkosninga næsta vor. „Þetta eru tólf ár, þetta er bara orðið gott. Tíminn hefur verði skemmtilegur, krefjandi og gengið vel. Við erum á miklu betri stað í dag rekstrarlega.“ Kjartan var bæjarfulltrúi í bæjarstjórn frá 1998 til 2006. Árið 2014 var hann ráðinn sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar þegar bærinn var í miklum fjárhagsvanda. Ferlið við að snúa rekstrinum við hafi verið langt og erfitt. „Það þurfti að vera algjör samstaða í sveitarstjórninni, annars hefði þetta aldrei gengið,“ segir Kjartan. Ræddu krabbameinsgreininguna Kjartan og Einar Bárðason þáttastjórnandi fóru einnig yfir veikindi Kjartans en hann greindist með krabbamein í júlí 2024. Hann fór í tæplega árs veikindaleyfi frá starfi og sneri aftur í nú í september. Samhliða veikindunum hefur hann einnig glímt við andlegar áskoranir en segir nauðsynlegt að rjúfa þögnina þar sem karlmenn séu ekki góðir í að ræða hlutina. „Ég hef alveg farið langt niður og séð bara svart. Þetta gerist enn, þó að lengra sé á milli. En þetta kemur fyrir,“ segir Kjartan. „Af því ég hef verið opinn með þetta hafa fullt af körlum komið til mín. Menn sem fjölskyldan veit ekki einu sinni að eru veikir. Þeir koma svona næstum fyrir hornið og segja, „getur þú aðeins talað við mig?“ Kjartan segist hafa verið ófeiminn við að ræða hlutina og hitta aðra karla sem séu með svipað krabbamein og hann. Það hafi hjálpað mörgum að setjast niður og ræða málin. Stuðningsnet fjölskyldu, vina og samstarfsfólks hafi skipt sköpum. „Þetta er hluti af því að vera manneskja. Það gerist eitthvað. Það eina sem maður getur stjórnað eru viðbrögðin við því.“
Reykjanesbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tímamót Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira