Menning

Glæ­nýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann skákar Arnaldi

Jakob Bjarnar skrifar
Arnaldur og Ólafur Jóhann hafa lengi tekist á þegar bóksölulistar eru annars vegar.
Arnaldur og Ólafur Jóhann hafa lengi tekist á þegar bóksölulistar eru annars vegar. vísir/vilhelm

Söguleg tíðindi er að finna í síðasta bóksölulista Fíbút fyrir þessi jólin. Kvöldsónata Ólafs Jóhanns Ólafssonar er komin í efsta sætið eftir stærstu bóksöluviku ársins. Hann skákar þar Arnaldi Indriðasyni sem hefur verið óskoraður konungur bóksölulistans undanfarin þrjátíu árin eða svo.

Út er kominn glænýr bóksölulisti frá Félagi íslenskra bókaútgefenda. Þessi listi má heita aðallistinn og gefur sterkar vísbendingar um hvernig fer þegar upp verður staðið.

„Við tökum svo árslistann saman í janúar og skoðum þá 20 mest seldu bækur ársins,“ segir Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda.

Ævar Þór á toppnum í sölu frá áramótum

Það er svo Yrsa Sigurðardóttir sem situr í öðru sæti listans með glæpasöguna Syndafall. Skólastjóri Ævars Þórs Benediktssonar hefur nú vikið úr efsta sætinu enda bókin uppseld víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu en nær þó að halda þriðja sæti listans. Arnaldur er svo í fjórða sæti með Tál.

Sé litið listans sem tekur til bóksölu frá síðustu áramótum er Ævar Þór þar á toppnum með Skólastjórann, Ólafur Jóhann er þar í öðru sæti með Kvöldsónötuna og þá kemur Arnaldur með Tál.

„Ég giska á að salan í desember sé áþekk eða kannski heldur minni en í fyrra. Ég held að því miður séum við ekki að sjá söluaukningu þrátt fyrir metútgáfu skáldverka og afar veglegt barnabókaár,“ segir Bryndís.

Forlagið og Bjartur Veröld mega vel við una

Hún segir reyndar marga titla hafa verið að seljast upp um helgina svo sala þeirra virðist vera yfir væntingum útgefenda.

„Sé litið á uppsafnaða listann sem mælir söluna frá áramótum sést að stóru útgáfurnar, Forlagið og Bjartur Veröld hafa báðar átt ágætis ár, Bjartur Veröld á til dæmis þrjár af fimm mest seldu bókum ársins og Forlagið á ellefu af tuttugu mest seldu bókum ársins.“

Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda rýnir í listana fyrir lesendur Vísis.vísir/vilhelm

En hver er sá sem helst hefur komið á óvart á vettvangi bóksölunnar?

„Svarti foli þessara jóla verður eiginlega að teljast Salvar Þór skólastjóri sem haldið hefur Bóksölulistanum í gíslingu frá því í október. Í sögu listans hefur ein og sama bókin aldrei verið í efsta sæti listans samfellt í október, nóvember og fyrstu tvær vikur desembermánaðar.“

Bryndís segir afrekið í raun verulegt því þarna sé um barnabók að ræða og því líklega engar stórar jólagjafasölur til fyrirtækja sem kynt hafa söluna.

„Það er svo skemmtileg tilviljun að aðalsöguhetjur tveggja bóka beri nafnið Salvar, Salvar Þór í Skólastjóranum og Salvar Bernódusson í Sjá dagar koma eftir Einar Kárason.“







Tengdar fréttir

Konungur bóksölunnar á í vök að verjast

Vísir birtir glænýjan bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda og felur hann í sér söguleg tíðindi. Æsast nú leikar þegar rétt rúm vika er til jóla.

Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass

Vísir birtir nú metsölulista bókaútgefenda (Fíbút) en í síðustu viku voru það veruleg tíðindi að Skólastjóri Ævars Þórs Benedikssonar seldist mest allra íslenskra bóka í bæði október og nóvember. Skaut Ævar Þór þar sjálfum metsölukóngi Íslands, Arnaldi Indriðasyni, ref fyrir rass.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.