Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Rafn Ágúst Ragnarsson og Tómas Arnar Þorláksson skrifa 21. desember 2025 16:01 Einar Freyr Elínarson er sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Einar Freyr Elínarson Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir að sveitarfélagið muni senda kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna viðbrögðum Vegagerðarinnar við sjávarflóðum sem hann segir lengi hafa ógnað byggðinni í Vík.
Mikill sjór gekk á land við Vík í Mýrdal í vikunni. Flóð myndaðist austan við þorpið og sunnan við þjóðveginn. Austan við Vík gekk sjór yfir þjóðveginn. Vegagerðin sendi frá sér tilkynningu fyrr í dag þar sem Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri í Mýrdalshreppi var sagður hafa farið með rangt mál um að Vegagerðinni beri að verja skipulagt land undan sjógangi. Hið rétta telur Vegagerðin vera að land þar sem mannvirki eru fyrir sé í forgangi við gerð sjóvarna. Lítill plástur á svöðusár Þessu hafnar Einar Freyr og segir sveitarstjórnina hafa séð sér þann kost einan færan að senda kvörtun til Umboðsmanns Alþingis vegna framferðar Vegagerðarinnar. Með ummælum sínum dragi stofnunin úr trúverðugleika sveitarstjórnarinnar og geri það með öllu útilokað að stjórnvöld ráðstafi fé til uppbyggingar sjóvarna á svæðinu. Fram kom einnig í tilkynningu Vegagerðarinnar að hún vinni ásamt VSÓ verkfræðistofu að skilgreiningu á varnarlínu framan við þjóðveginn. Í framhaldi af því verði lagt til að reist verði flóðvörn á kafla. Til skamms tíma verði einnig skoðað að rjúfa Kötlugarðinn, varnargarð austan við Vík, til að hleypa flóðvatni á stærra svæði og að byggð verði tímabundin flóðvörn í vegstæði reiðvegar sem fyrir er. Þetta telur sveitarstjórinn ekki nægja. „Ég held að þetta sé lítill plástur á svöðusár eins og öllum ætti nú að vera augljóst,“ segir hann. „Það dylst engum sem sjá myndirnar sem birtust í fjölmiðlum í vikunni af þessum sjávarflóðum að mannvirkjum og þjóðvegi eitt stafar orðið gríðarleg ógn af sjávarflóðum og landrofi. Öll þau mannvirki sem þarna eru eiga sér stað á deili- og aðalskipulagi og hafa því hlotið meðferð samkvæmt lögum. Því veit ég ekki alveg hvar Vegagerðin hefur stoð í lögum fyrir sinni túlkun,“ segir Einar Freyr. Deildar meiningar um sjóvarnarlög Hann segir að vegna túlkunar sinnar á lögum um sjóvarnir hafi Vegagerðin hafnað því að fara í nauðsynlegar aðgerðir og í leiðinni dregið úr trúverðugleika málstaðar sveitarfélagsins. „Ég veit ekki hvaða hagsmunum túlkun þeirra gegnir, það dylst engum að það sé mikilvægt að bregðast þarna við. Þjóðvegurinn er í hættu, mannvirki eru í hættu. Sjóvarnarlögin eru mjög skýr.“ Einar Freyr segist vilja sjá undirbúning nýs sandfanga á svæðinu nú þegar. Sveitarfélagið hafi lengi barist fyrir slíkum. Aðspurður kveðst hann vongóður um að Umboðsmaður Alþingis taki málið upp. „Það er auðvitað þrautalending að þurfa að senda kvörtun til Umboðsmanns Alþingis en ég vona bara að Vegagerðin sjái að sér og ráðist í nauðsynlegar aðgerðir,“ segir hann.
Mýrdalshreppur Vegagerð Stjórnsýsla Umboðsmaður Alþingis Mest lesið Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Sjá meira