„Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. desember 2025 09:01 Mohamed Salah þakkar fyrir síðasta leik sinn með Liverpool í bili en hann gæti líka verið sá síðasti sem hann spilar í búningi félagsins. Getty/Carl Recine Mohamed Salah hefur verið stærsta stjarna Liverpool í langan tíma og átti stórbrotið síðasta tímabil. Þessi mikla athygli á nýjum leikmönnum Liverpool virðist hafa farið illa í Egyptann ef marka má fréttir innan úr herbúðum félagsins.
Mohamed Salah líkaði hreinlega ekki að falla í skuggann af nýju leikmönnunum. „Af þeim samtölum sem ég hef átt undanfarið virðist þetta snúast um eitthvað dýpra en bara að hafa verið settur á bekkinn,“ sagði Liverpool-fréttaritarinn Lewis Steel í Daily Mail. Aftonbladet segir frá. Mohamed Salah gagnrýndi aðalþjálfarann Arne Slot og stjórn Liverpool. Hinn 33 ára gamli Egypti setti spurningamerki við að hafa verið settur á bekkinn í þremur leikjum í ensku úrvalsdeildinni í röð. Það leiddi til þess að hann var skilinn einn eftir heima fyrir Meistaradeildarleikinn gegn Inter á San Siro í Mílanó. Liverpool-fréttaritarinn Lewis Steel er spurður hvað hafi legið að baki yfirlýsingu Mohamed Salah. „Þótt hann myndi aldrei segja það, þá held ég að hann hafi ekki verið ýkja hrifinn af leikmannakaupunum í sumar og hvernig Florian Wirtz og Alexander Isak eru settir fram sem leikmennirnir sem eiga að taka liðið áfram,“ sagði Lewis Steel samkvæmt Fotbollskanalen. „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz,“ sagði Steel. Þetta á að hafa valdið því að gremja Mohamed Salah hefur byggst upp undanfarið. Eftir að Mohamed Salah og Arne Slot höfðu talað saman var sóknarstjarnan aftur með í 2-0 sigrinum gegn Brighton á Anfield á laugardagseftirmiðdegi. Hann kom inn á á 26. mínútu eftir að Joe Gomez meiddist og lagði upp seinna markið sem Hugo Ekitike skoraði. Nú er Mohamed Salah farinn til að undirbúa sig með Egyptalandi fyrir Afríkukeppnina í Marokkó. Hann spilar ekki aftur fyrir Liverpool fyrr en á nýju ári, ef hann gerir það þá einhvern tímann aftur.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fleiri fréttir Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Newcastle - Bournemouth | Halda norðanmenn uppteknum hætti? Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Sjá meira