Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Lestrarklefinn 15. desember 2025 15:45 Þau Þórunn Rakel Gyfadóttir og Simon Okoth Aora hafa sent frá sér bókina Mzungu. Bókin er tekin fyrir í Lestrarklefanum. Bók Þórunnar Rakelar Gylfadóttur og Simon Okoth Aora er tekin fyrir á menningarvefnum Lestrarklefinn. Sjörn Asare hefur þetta að segja um bókina.
Bókin Mzungu, sem skrifuð er af Þórunni Rakel Gyfadóttur og Simon Okoth Aora, kom út á dögunum hjá útgefandanum Angustúru. Bókin er sögð vera byggð á sönnum atburðum, en hún segir af hinni íslensku Huldu sem skellir sér til Kenía til að láta gott af sér leiða. Með sér í för hefur hún son vinahjóna sinna og aðra konu, hana Ástu, en þau eru öll í leið á barnaheimili sem rekið er af íslenskum manni í Kenía. Í bókinni kynnist lesandi, auk Huldu, hinum keníska Ochala, sem er að ljúka BS námi og vinnur sem bókari á barnaheimilinu og Caroline sem er fátæk, einstæð tveggja barna móðir sem segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við þau sem reka heimilið sem Hulda sækir heim. Mzungu: Sá eða sú sem ráfar stefnulaust um, upphaflega notað í Austur-Afríku til að lýsa landkönnuðum á 18. öld. Í dag er þetta hugtak aðallega notað um Vesturlandabúa. (Aftan á bókarkápu) Eftir komuna til Kenía fara fljótlega að renna tvær grímur á Huldu sem sér að ekki er allt með feldu í rekstrinum. Skúli, formaður heimilisins, er greinilega ekki að reka heimilið af manngæsku, hann er hraðlyginn og margsaga um sig og sína hagi og lítur mikið niður á konur sem eignast börn utan hjónabands. Sjöfn Asare fjallar um bækur á menningrvefnum Lestrarklefinn. Þegar á líður kemst Hulda að því að starfsfólkið sætir vinnuþrælkun og alls kyns mótlæti og þau Skúli og Eveline, kona hans, maka krókinn án þess að nýta styrktarféð sem þau fá frá Íslandi í að byggja upp starfsemina eins og þau segjast vera að gera. Hulda vill auðvitað reyna að láta gott af sér leiða og reynir að hjálpa Caroline og öðrum vinnukonum á heimilinu, en að stökkva inn í aðstæður í ólíkum menningarheimi reynist mun hægara sagt en gert. Menningarmunur og máttleysi Hulda reynir vanmáttug að hjálpa starfsfólki heimilisins án þess að hafa hugsað fyrir góðri lausn fyrir fólkið sem hún vill frelsa og er ítrekað sagt að hún skilji bara ekki menninguna og að svona séu hlutirnir bara í Kenýa. Það sem bókin gerir vel er að hún stimplar Huldu ekki sem góðmenni á móti illmennunum Skúla og Eveline, heldur passar hún upp á að sýna að Hulda er marglaga persóna sem vissulega er komin full langt út í djúpu laugina og veit ekki hvernig er best að hjálpa til. Það er sannfærandi lýsing á því marga vestræna fólki sem fer til Austur-Afríku og ætlar sér að hjálpa heimafólki án þess endilega að vera með góða áætlun um hvernig ætti að standa að því. Þó góður vilji sé fyrir hendi er það ekki endilega nóg, en það þýðir samt ekki að maður ætti ekki að reyna að hjálpa, eða hvað? Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókaútgáfa Jól Mest lesið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira