Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Eldofninn 17. desember 2025 09:00 Helvítis jólapizzan er pizza mánaðarins á Eldofninum. Hún er unnin í samvinnu við Ívar Örn Hansen, öðru nafni Helvítis kokkurinn, og skartar óvenjulegu og bragðgóðu áleggi. Helvítis jólapizzan, sem er pizza mánaðarins á Eldofninum, hefur slegið í gegn enda óhefðbundin jólaveisla þar sem óvenjuleg hráefni blandast saman í eftirminnilegri bragðveislu.
Pizzan er afrakstur samstarfs Eldofnsins og Helvítis og inniheldur andaconfit, sveppi, blaðlauk, rauðlauk, papriku, piparost og radísur … já þið lásuð rétt. Ofan á herlegheitin fer svo Helvítis eldpiparsulta sem inniheldur rauðan jalapeño og basil. Fyrir þau hugrökku sem vilja meiri hita er hægt að skipta út sultunni fyrir Helvítis eldpiparsultu með habanero og appelsínu sem kveikir heldur betur í fólki! Helvítis jólapizzan inniheldur andaconfit, sveppi, blaðlauk, rauðlauk, papriku, piparost og radísur ásamt Helvítis eldpiparsultu með rauðum jalapeño og basil. Að sögn Ívars Arnar Hansen, sem stendur á bak við Helvítis ásamt eiginkonu sinni Þóreyju Hafliðadóttur, gekk samstarfið mjög vel.„Þetta var þeirra hugmynd en eigendur Eldofnsins höfðu samband við okkur viku áður en pizzan var kynnt til sögunnar. Við ákváðum bara að keyra þetta í gang og prófuðum okkur áfram með ólík hráefni. Helvítis sultan gegnir lykilhlutverki hér en athyglisverðasta áleggið er þó radísurnar sem ég hafði aldrei séð á pizzu áður. Við erum öll mjög sátt við lokaafurðina.“ Viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa. „Þetta er bara sjúklega mikil negla og viðskiptavinir Eldofnsins hafa verið mjög ánægðir með þessa óvenjulegu og bragðgóðu pizzu.“ Helvítis hefur á stuttum tíma vakið mikla athygli fyrir eldpiparsultur sínar en sú nýjasta kom í verslanir nýlega og inniheldur jarðaber og svartan pipar. Auk þess hefur Ívar, sem Helvítis kokkurinn, slegið í gegn með samnefndum matreiðsluþáttum á Sýn. Helvítis eldpiparsulta, sem inniheldur rauðan jalapeño og basil, fer ofan á pizzuna og gefur henni einstakt bragð. Fyrir þau hugrökku sem vilja meira bit er hægt að skipta út sultunni fyrir Helvítis eldpiparsultu með habanero og appelsínu. Eldofninn opnaði sumarið 2009 og er af mörgum talinn vera eitt best geymda leyndarmál Reykjavíkur. Staðurinn býður upp á ekta eldbakaðar ítalskar pizzur og er pizzaofninn fluttur inn frá Ítalíu. Áhersla er lögð á íslenskt hráefni en pizza sósan og deigið er búið til frá grunni daglega. Á Eldofninum er einnig selt ekta ítalskt kaffi sem staðurinn flytur sjálfur inn en um er að ræða Italcaffè frá La Spezia á Ítalíu. Jólapizzan verður í boði út desember og jafnvel út þrettándann, 6. janúar, þar sem viðtökurnar hafa verið svo góðar. Pizza mánaðarins á Eldofninum í janúar verður Veganúar pizzan og ríkir mikil eftirvænting eftir henni. Nánari upplýsingar á vef Eldofnsins.
Matur Sultur Helvítis kokkurinn Mest lesið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Lífið Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Fleiri fréttir Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Sjá meira