Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. desember 2025 10:52 Ef af verður yrði um að ræða risa samruna á bandaríksum streymisveitumarkaði. Getty/Avishek Das Bandaríska framleiðslufyrirtækið Warner Bros hefur hafið viðræður við Netflix um möguleg kaup Netflix á sjónvarps- og kvikmyndaveri fyrirtækisins og streymisveitunni HBO sem er í eigu Warner Bros. Fleiri fyrirtæki hafa lýst áhuga á að eignast myndver og streymisveitu Warner Bros en fyrirtækið er nú sagt aðeins eiga í viðræðum við Netflix sem hafi tekið forskotið í samkeppni við önnur fyrirtæki um kaupin.
Netflix er sagt reiðubúið til að greiða fimm milljarða bandaríkjadala í aðskilnaðargjald ef stjórnvöld fallast ekki á viðskiptin að því er viðskiptablaðið Bloomberg hefur eftir heimildarmönnum. Bloomberg fullyrðir að fyrirtækin muni tilkynna um áformin á allra næstu dögum, að því gefnu að viðræður renni ekki út í sandinn. Viðræður fyrirtækjanna eru sagðar til marks um að Netflix sé komið með forskot á Paramount Skydance og Comcast sem einnig höfðu áhuga á að eignast streymisveitu og myndver Warner Bros Discovery. Í umfjöllun Guardian um málið segir að ef af verður muni viðskiptin fela í sér dramatískar breytingar á rótgrónu sjónvarps- og kvikmyndaumhverfi. Markaðsvirði Warner Bros er sagt nema um 60 milljörðum bandaríkjadala og herma fregnir að Netflix hafi boðið verðið 28 til 30 dollara á hlut, en gengi í bréfum félagsins í dag er um 24 dollarar. Það gefur til kynna að kaupverðið gæti numið 70 til 75 milljörðum bandaríkjadala. Greinendur hafa varað við því viðskiptin gætu haft neikvæðar afleiðingar á samkeppni, þar sem þau myndu fela í sér samruna tveggja af stærstu streymisveitum Bandaríkjanna.
Bíó og sjónvarp Netflix Bandaríkin Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira