Ég og Dagur barnsins HRÓPUM á úrlausnir … Hvað með þig? Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar 25. nóvember 2025 13:01 Nú er nýliðinn Dagur barnsins. Það fær okkur til að huga enn frekar að velferð barnanna okkar. Sú umræða sem fram hefur komið í þessu sambandi hjá alþingismönnum er áhugaverð. „Börnin eru lífsljósin okkar. Í raun er allt okkar starf í samfélaginu unnið fyrir þau að leggja drög að góðri framtíðarafkomu fyrir þjóðarbúið, fjölskyldur þess og blessuð börnin. Við erum alltaf á öllum verksviðum að undirbúa morgundaginn, en auðvitað í senn að njóta stundarinnar sem líður, njóta þess að börnin okkar eru að vaxa upp og læra á lífið. Til allrar hamingju fá flest börn á Íslandi traust og umhyggjusamt uppeldi. Annars ættum við enga framtíð til að líta björtum augum. ” Þessi orð ritaði frú Vigdís Finnbogadóttir í formála bókarinnar, Að alast upp aftur, Annast okkur sjálf, annast börnin okkar eftir dr. Jean Illsley Clarke. Í tilefni af útgáfu bókarinnar var haldin ráðstefna um foreldrahæfni þann 22. nóvember árið 2002 þar sem dr. Clarke var aðalfyrirlesari (Gunnar Hersveinn, 2002). Bókina má nálgast á bókasöfnum. Þungamiðjan í erindi dr. Clarke var mikilvægi foreldrafræðslu og stuðnings á meðgöngu og á fyrstu æviárunum barnsins. Í erindi hennar kom m.a. fram að með fræðslu og stuðningi felist tækifæri til í að umbylta bernsku barna til hins betra. Til að leggja enn betri áherslu á mikilvægi fyrstu áranna, sagði dr. Clarke. „Leikskólakennarar eiga að fá sömu laun og háskólakennarar.“ Ráðstefnan var á vegum ÓB-ráðgjafar í samstarfi við Barnaverndarstofu, Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Heimili og skóla, Kennaraháskóla Íslands og Umboðsmann barna. Dóms- og kirkjumála- og menntamálaráðuneytin, Icelandair, Íslandsbanki og Reykjanesbær styrktu ráðstefnuna.Í dag erum við vel sett af alþingismönnum sem stöðugt leggja drög að úrlausnum og góðri framtíðarafkomu fyrir þjóðarbúið. Í umræðum um fíkniefnavanda tók Bryndís Haraldsdóttir þingkona til máls á Degi barnsins þar sem hún tók undir með Höllu Hrund Logadóttur þingkonu um að fjármunir skyldu fylgja barni (sjúklingi) í þessum efnum. Ég tel að sama myndi eiga við um fólk í barneignarferli. Fjármunir í meðgöngu- og ungbarnavernd fylgi barni. Fleiri þingmenn tjáðu sig á Degi barnsins, þar á meðal Jón Gnarr. Fjöldi annarra þingmanna hefur tjáð sig um alvarlega stöðu barnanna okkar. Rannsóknarnefnd Alþingis var þriggja manna nefnd skipuð af Alþingi með lögum eftir bankahrunið á Íslandi haustið 2008. Í ljósi þess hvað staða barna hefur verið háalvarleg til langs tíma, samkvæmt innlendum og erlendum gögnum, tel ég brýnt að sett verði á fót rannsóknarnefnd um stöðu málefna barna á Íslandi. Rannsóknin gæti beinst að því sem Jón Gnarr telur að „hnífurinn standi (liggi) í kúnni.“ Í mikilvægri Facebook-færslu á degi barnsins skrifar hann: „Við erum með hóp af unglingsstrákum á aldrinum 11-18 ára sem eru í alvarlegri neyslu á hörðum fíkniefnum. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þá eru þetta á bilinu 10-20 strákar. Margir af þeim eru svo illa staddir að þeir eru metnir af sérfræðingum „í lífshættu á öllum tíma“… Mér finnist eðlilegt og frekar brýnt að barnamála- og heilbrigðisyfirvöld tækju nú höndum saman um að bæta úr þessu ófremdarástandi og koma hér upp raunverulegu meðferðar- og afeitrunarúrræði fyrir unglinga í fíknivandamálum.” Ég er hjartanlega sammála þingmanninum, „brýnt að barnamála- og heilbrigðisyfirvöld tækju nú höndum saman um að bæta úr þessu” Aftur að rannsóknarnefndinni. Fyrstu hugmyndir mínar að nokkrum hugsanlegum rannsóknarspurningum. Hvernig var þjónusta við foreldra áðurnefndra 11-18 ára unglinga á fyrstu 1000 dögunum þeirra? (Meðgöngu og fyrstu 2ja æviáranna) Nýttu báðir foreldrar fæðingarorlof? Hversu vel tókst foreldrum til í foreldarsamvinnu? Á hvaða aldri voru drengirnir þegar þeir hófu leikskólagöngu? Voru menntaðir leikskólakennarar á deildinni þeirra? Hvenær gerðu foreldrar eða starfsfólk sér grein fyrir að þörf væri á inngripi? Var brugðist við þörfinni fyrir inngrip, ef já þá hvenær og hvernig? Hefur foreldri umræddra drenga dottið út af vinnumarkaði meðan beðið var eftir að brugðist væri við? Það er því miður nóg af brýnum verkefnum að taka þegar kemur að því að hefja þessa rannsókn. Þar má nefna frétt á Rás 1, daginn eftir síðasta Kveiksþátt þar sem rætt var við Önnu Maríu Jónsdóttur, geðlækni hjá Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð, þar sem hún áréttaði að áhrif kynferðisofbeldis væru jafnvel alvarlegri þegar börn eru mjög ung. „Raddir barna eru ekki teknar nægilega alvarlega. Í raun og veru hef ég orðið vör við það, mér finnst það vera á öllum sviðum í okkar kerfi, ekki bara í heilbrigðiskerfinu eða barnaverndarkerfinu heldur líka í dómskerfinu. Og það er þannig að fjölskyldur eru stundum að verða fyrir endurteknum áföllum því það er ekki hlustað,“ segir Anna María. Í gær fór Sæunn Kjartansdóttir yfir sama mál í Mannlega þættinum á Rás 1 þar sem úrræða- og þekkingarleysi hins opinbera í málefnum yngstu barnanna var staðfest með skýrum hætti. Áberandi var að embættismaður borgarinnar brást við með því að fara í vörn í stað þess að viðurkenna alvarleika málsins og þörf fyrir úrlausnir. Eftirfarandi er tilvitnun í nýútkomna bók, Barnavernd á Íslandi fyrr og nú. Dr. Sigrún Júlíusdóttir ritaði inngang og er vitnað í orð hennar hér. Bókin er gefin út í tilefni af 90 árum frá setningu fyrstu barnaverndarlaganna á Íslandi og tæp 30 ár eru frá því Barnaverndarstofa (nú BOFS, Barna og fjölskyldustofa) hóf starfsemi:„Þrátt fyrir lagaumbætur og úrræða- og aðferðaþróun á sviði barnaverndar á 20. og 21. öld hefur áfram verið misbrestur á heildrænni stefnumótun í málefnum barna og foreldra. Þingsályktun um fjölskyldustefnu, sem fyrst var lögð fram af hálfu landsnefndar um Ár fjölskyldunnar 1994, lognaðist út af í stjórnkerfinu.” Anna María, Sigrún og Sæunn hafa verið fremstar meðal jafningja í að berjast fyrir bættum hag barnanna okkar. Væri ekki viðeigandi að þær fengju loksins áheyrn? Það liggur ljóst fyrir að úrræðaleysi í málefnum barna hefur varað allt of lengi. Í lokin langar mig til að vitna aftur í formála frú Vigdísar. „Í öllu amstrinu í þágu framtíðar leynist þó stundum sinnuleysi sem á skylt við það að hafa gleymt því hvernig það er að vera barn, hvernig við sem börn vorum tilfinningarík, auðsærð og vel athugul á allt okkar umhverfi. Það sem við upplifum sem börn, gott sem miður gott, situr í hugarfylgsnum alla ævi og er áhrifavaldur í leitinni að lífshamingju. Breyttir tímar eru alltaf á næsta leiti og endalaust þarf að aðlaga sig að þeim. Þessi góða bók fjallar um það hvernig okkur, foreldrum, öfum og ömmum, sem ölum upp börn okkar með þá einlægu ósk að þau njóti láns og gleði í lífinu, er jafnframt hollt að ala okkur sjálf upp að nýju, til að sem best megi takast að móta skilning, lífsþrótt, sjálfsaga og sjálfsvirðingu í opnum hugum þess ungviðis sem okkur hefur verið falið. Að gefa börnum okkar þannig það besta sem við eigum í okkur sjálfum. Ég hef lengi verið sannfærð um að kærleikur og jafnvægislist í uppeldi sé allrabesta veganestið aõ heiman. Höfundur kom að stofnun og á sæti í stjórn, Fyrstu Fimm sem er hagsmunafélag foreldra og fagaðila um barn- og fjölskylduvænna samfélag og er fjölskyldu- og hjónaráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Grétar Gunnarsson Mest lesið Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz Skoðun Skoðun Skoðun Ofan í skotgrafirnar Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ferðaþjónusta fatlaðra Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Lesum í sumar – börnin okkar fylgjast með Jón Heiðar Gunnarsson skrifar Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Landráðabrigsl og skrípaleikir Einar Kárason skrifar Skoðun EES eða ESB – þar er efinn Dóra Sif Tynes skrifar Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar Skoðun Meira en Kaupmannahafnarskilyrðin Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar nýbakaðir foreldrar lenda á vegg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er það hræðsla að segja nei? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er mikilvægast? Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Jákvæða hliðin á minkamálinu Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Viðvörunarljós í evrópsku atvinnulífi Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna erum við enn að reyna að binda hendur fólks? María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir kjósendur eða evrópskir embættismenn? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá er tálsýn Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ísland og ESB: Horft af brúnni Þorvaldur Gylfason skrifar Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun
Skoðun Hvað kostar núverandi staða verslunina og íslenska neytendur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Íbúðalán í raunheimum: Svar við athugasemdum Gauta B. Eggertssonar Agnar Tómas Möller skrifar
Skoðun Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir skrifar
Skoðun Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson skrifar
Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson skrifar
Skoðun Byrgjum brunninn áður en barnið dettur ofan í – eflum forvarnir í raun! Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Hér býr fólk! Rödd íbúa á framkvæmdasvæði Miðbæjar í mótun í Kópavogi Elín Kona Eddudóttir Skoðun
Fyrst þarf Ísland að ná niður verðbólgu og vöxtum með krónunni. Þá fyrst kemur evran til greina Jón Helgi Egilsson Skoðun