Hvað kennir hugrekki okkur? Sigurður Árni Reynisson skrifar 22. nóvember 2025 07:30 Hugrekki er sjaldnast það sem glansmyndirnar sýna. Það er ekki maður á fjallstindi með vindinn í hárinu, né heldur það sem fólk setur á samfélagsmiðla. Hugrekki er eitthvað miklu dýpra, eitthvað sem gerist innra með okkur, oft án þess að nokkur sjái það. Í sinni upprunalegustu mynd er hugrekki hvorki hljóð né hreyfing, heldur kyrr sannfæring. Það er augnablik þar sem hjartað ákveður að standa í ljósi sannleikans, þótt þögnin hallist að manni með öllum sínum þægindum. Hugrekki býr í þeim sem þora að standa aðeins til hliðar og í þeim sem halda sannfæringu sinni á lofti þegar allir aðrir falla í takt. Það er í manneskjunni sem stígur fram þegar það er þægilegra að sitja kyrr og í sálinni sem þorir að vera hún sjálf þó allt í kring kalli á að hún verði eitthvað annað. Í því felst dýpsta birtingarmynd hugrekkis, að upphefja ekki sjálfan sig, heldur sannleikann innra með sér. Í sinni einföldustu mynd er hugrekki að mæta, að rísa upp, að taka eitt smátt en heiðarlegt skref. Og í slíku skrefi býr öll fegurð hugrekkisins. Ég hef alla tíð hrifist af fólki sem þorir að vera það sjálft, jafnvel þó það sé álitið skrýtið. Allt sem er öðruvísi hefur alltaf dregið mig að sér eins og segull. Sennilega vegna þess að ég dáist að slíku hugrekki, og kannski vegna þess að ég er þannig sjálfur. Ég hef alltaf beint athyglinni að fólki sem neitar að missa litina sína til að falla inn í grátt mynstur annarra, fólki sem stígur inn í rými þar sem enginn bjóst við því og heldur fast í eigin sannfæringu þótt aðrir hafi gefist upp. Saga okkar Íslendinga geymir dæmi um slíkt hugrekki. Þegar forsetinn synjaði að skrifa undir Icesave stóð hann einn á móti afli sem virtist óhreyfanlegt, ríkisstjórn, sérfræðingum og alþjóðlegum þrýstiöflum. Ákvörðunin vakti bæði reiði og ótta, en hún kveikti líka von. Hún minnti okkur á að stundum þarf einn maður að standa í stríði sem enginn vill heyja, svo þjóðin fái að segja sitt. Og hvort sem fólk var honum sammála eða ekki, kenndi þetta okkur að hugrekki er ekki að velja auðveldustu leiðina heldur þá sem hjartað bendir á, þó svo að þú þurfir að synda á móti straumnum. En hugrekki birtist ekki aðeins á hátindi valdsins. Það birtist líka í sínum hljóðlátustu myndum í lífi manneskju sem hefur misst, fallið, vaknað aftur og þarf að mæta heiminum með skjálfandi höndum. Ég man eins og það hefði gerst í gær þegar ég þurfti að sækja um vinnu í fyrsta sinn eftir dóminn. Tvö ár voru liðin frá niðurstöðunni í Landsrétti og ég hugsaði aftur og aftur, hver er að fara að ráða dæmdan mann? Ég var í sálfræðinámi og ákvað að sækja um á geðdeild, ekki aðeins til að skilja sjúkdómana sem ég var að læra um, heldur af því að ég hélt að þar væru meiri líkur á að fá vinnu. En þegar ég gekk inn í anddyri sjúkrahússins helltist yfir mig ótti sem ég hafði sjaldan fundið fyrir. Ég fann líkamann fyllast ógeðstilfinningu, skömm, sjálfshatri og viðkvæmni sem brann á húðinni. „Ég er ekki nógu góður, hver vill fá mann eins og mig í vinnu?“ Ég gekk út úr sjúkrahúsinu þrisvar sinnum til að endurstilla mig, anda, kyngja tárunum sem brunnu á hvarminum og til að sannfæra mig um að snúa aftur. Ég vissi ekki þá að þetta væri hugrekki. Ég fór í viðtalið skjálfandi, brothættur og tilbúinn við það að fá „nei“ en það kom ekki og ég fékk vinnuna. Fyrstu dagarnir voru eins og að ganga á eggjaskurn, en ég fann smá gleði að hafa þó þorað. Eftir vikuþjálfun fékk ég smáskilaboð í símann, fundur með deildarstjóra og starfsmannastjóra og ég mætti hafa trúnaðarmann með. Ég vissi hvað var að gerast. Fortíðin mín var mætt. Ég mætti einn. Ég ákvað að bera skömmina sjálfur í síðasta sinn. Andspænis þeim tveimur, deildarstjóranum og starfsmannastjóranum, sat ég niðurlútur, hlustandi á ásakanir um að ég hefði ekki sagt satt. Ég hefði alveg eins getað staðið upp og gengið burt. Hjartað lamdi. Hendurnar sveittar. Röddin villtist inni í mér. Svo kom þögn. Og í þeirri þögn spurði starfsmannastjórinn „Hvað gerðist þarna, Siggi?“ Það var eins og einhver opnaði hurð innra með mér. Eins og rödd sem hvíslaði „láttu vaða“. Og ég gerði það. Ég sagði allt. Allt sem ég hafði reynt að halda í skugga. Frásögnin byrjaði hikandi en röddin styrktist eftir því sem sannleikurinn flæddi út. Þegar ég lauk frásögn minni var ég tæmdur, skjálfandi og algerlega búinn á því. Það voru einu erfiðustu klukkustundir lífs míns að bíða eftir niðurstöðunni. Svo hringdi síminn. Þögn í heilan andardrátt. Og loks orð sem breyttu öllu,„ég hef ákveðið að trúa þér, Siggi og ég ætla að treysta þér.“ Ég fraus. Svo brast eitthvað innra með mér. Tárin komu án þess að ég gæti stoppað þau. Ég stóð einn heima hjá mér með símann í hendinni, fann hnén gefa sig og sökk niður þar sem ég stóð. Og í því augnabliki í kyrrðinni eftir þessi ár kviknaði veikur, en dýrmætur neisti, kannski, bara kannski, ætti ég aftur möguleika á að verða aftur heill maður. Það tók mig langan tíma að skilja það, en í dag veit ég að þarna fann ég mitt eigið hugrekki og fyrir það er ég þakklátur á hverjum degi. Hugrekki kennir okkur að leiðtogi þarf ekki að vera sá sem hefur fallegustu orðin eða fullkomnasta pappírinn. Stundum er hugrekki fólgið í því að spyrja óþægilegra spurninga, hrista upp í hefðum og stíga inn í rými þar sem allir vita að erfiðar áskoranir bíða. Það kennir okkur að jafnvel þeir sem virðast ólíklegastir geta borið stóra ábyrgð ef þeir hafa hjartað í málinu. Hugrekki kennir okkur að enginn þarf að vera fullkominn til að skipta máli. Það eina sem þarf er hjarta sem trúir að einhverju megi breyta, augun sem sjá það sem aðrir hafa hætt að sjá og rödd sem þorir að nefna það sem helst væri þagað í hel. Og ef sagan hefur kennt okkur eitthvað, þá er það þetta, stundum er það einmitt sá sem stendur aðeins til hliðar, sá sem allir efast um, sem endar á að færa heila þjóð inn á nýja braut. Höfundur er mannvinur og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun