Þrír metnir hæfir til að stýra Óperunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 21. nóvember 2025 15:18 Þorleifur Örn, Finnur og Bjarni Thor eru metnir hæfir til að gegna hlutverkinu. Vísir Hæfnisnefnd hefur metið þrjá hæfa í hlutverk óperustjóra við Nýja þjóðaróperu. Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur lýst sig vanhæfan í málinu og mun Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra taka ákvörðunina.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hæfnisnefndin metið þá Bjarna Thor Kristinsson, Finn Bjarnason og Þorleif Örn Arnarsson hæfa til að gegna stöðunni. Til stóð að skipa í stöðuna eigi síðar en 15. nóvember síðastliðinn en seinkun hefur orðið á því. Ein af flækjunum er hæfi menningarráðherra. Logi Einarsson mun ekki ákveða hver verður óperustjóri heldur kemur það í hlut Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.Vísir/Ívar Fannar Ástæðan er sú að Finnur Bjarnason var í nóvember fyrir tveimur árum ráðinn verkefnisstjóri hjá menningarráðuneytinu vegna stofnunar þjóðaróperu. Hann hefur því unnið náið innan ráðuneytis Loga sem telur sig ekki hæfan til að taka ákvörðun um ráðninguna. Fram kom hjá Ríkisútvarpinu í dag að Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra taki við málinu í stað Loga. Ellefu sóttu um stöðu óperustjóra og kom það í hlut fimm manna hæfnisnefndar að leggja mat á umsækjendur. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir var formaður nefndarinnar en auk hennar sátu í nefndinni Magnús Geir Þórðarson Þjóðleikhússtjóri sem óperan mun heyra undir, Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur, Kristinn Sigmundsson óperusöngvari og Þóra Einarsdóttir óperusöngvari.
Þjóðaróperan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Menning Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið HAM boða endalok alls Tónlist „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira