Var ráðskona Kára Stefánssonar þegar ástin kviknaði Jón Ísak Ragnarsson skrifar 15. nóvember 2025 20:47 Eva gekk í það heilaga með Kára á síðasta ári. Instagram Eva Bryngeirsdóttir einkaþjálfari gekk í hjónaband með Kára Stefánssyni undir lok síðasta árs. Kára hitti hún fyrst fyrir áratug síðan í tengslum við rannsókn á sjúkdómi sem móðir hennar greindist með, en tíu árum síðar hafði hún aftur samband við Kára þegar hún var að byggja upp fyrirtæki sitt. Lýsti Kári þá yfir þörf sinni fyrir ráðskonu á heimilið og svo fór að Eva tók það að sér og eitt leiddi af öðru.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegu helgarviðtali Mannlífs við Evu í dag. Í viðtalinu segir Eva frá sorgum og áföllum sem hafa haft mikil áhrif á líf hennar, en hún tók líf sitt í gegn í kjölfar foreldramissis og kulnunar og fór í kjölfarið að huga að hollu líferni og mataræði sem og hreyfingu. Hugmyndarík ung dama Eva segir frá því að hún hafi alltaf verið mjög hugmyndarík ung dama, en hún hafi verið greind með ADHD árið 2023. „Öll menntaskólaárin afmarkast af klassísku ADHD. Ég fór síðan á málabraut og síðan á félagsfræðibraut og ég útskrifaðist af þeirri braut. Og ég er með aukaeiningar af því að ég var búin að skipta svo oft um braut. Ég get lofað þér því að náms- og starfsráðgjafinn í skólanum fagnaði því örugglega þegar ég útskrifaðist,“ segir Eva. Sendi tölvupóst á Íslenska erfðagreiningu Eva missti föður sinn úr briskrabbameini þegar hún var aðeins nítján ára gömul, og nokkrum árum síðar veiktist móðir hennar af framheilabilun. „Ég myndi ekki óska neinum að ganga í gegnum þau erfiði. Hún missti málið mjög snemma. Þetta var hræðilegt,“ segir Eva um veikindi móður sinnar. Í kjölfar veikindana hafi hún sent tölvupóst á aðalnetfang deCODE og spurt hvort fyrirtækið hefði rannsakað ættgengi Pick's disease, og Kári Stefánsson hafi svo hringt til baka. „Hann sagði að þau hefðu ekki fundið ættgengi sjúkdómsins en þau vildu gjarnan fá að raðgreina okkur systkinin og skoða þetta. Ég bara vó! Bara Kári að hringja í mig! Ok.“ „Hann er bara heitur!“ Þá hafi hún gengið á fund Kára, og hrifist svo af honum að hún hafi sagt við systur sína eftir fundinn: „Hann er bara heitur!“ Næst hafi hún hitt Kára árið 2023 þegar hún var að byggja upp fyrirtæki og hafði samband við hann til að kynna námskeiðið sem hún var að þróa. Hann hafi boðið henni í kaffi og lýst yfir þörf sinni fyrir ráðskonu á heimilið, og hún hafi í kjölfarið farið að reka heimili Kára auk þess að elda fyrir hann nokkrum sinnum í viku. Vináttan hafi svo þróast í ást. Lengra viðtal Mannlífs
Ástin og lífið Tengdar fréttir Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Eins og oft er sagt, er aldur afstæður. Ein mesta gæfa í lífi fólks er að finna ástina og eins og allir vita spyr ástin ekki um aldur. Hér að neðan er listi yfir þekkta einstaklinga í samfélaginu þar sem aldursmunurinn er allt að 45 ár. 10. mars 2025 07:01 Mest lesið Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Enn og aftur dæmdur í fangelsi Bíó og sjónvarp Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Sjóðheitar í ísköldu teiti Lífið „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Lífið Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Tónlist Í fyrsta sinn utan Úkraínu Menning Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Sjá meira
Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Eins og oft er sagt, er aldur afstæður. Ein mesta gæfa í lífi fólks er að finna ástina og eins og allir vita spyr ástin ekki um aldur. Hér að neðan er listi yfir þekkta einstaklinga í samfélaginu þar sem aldursmunurinn er allt að 45 ár. 10. mars 2025 07:01