Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa FM957 og Fjarðarkaup 8. nóvember 2025 09:02 Knútur Haukstein Ólafsson frá Akranesi vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa 2025. Hér heldur hann á Ryan Gosling graskeri sem tók átta klukkustundir að klára. Knútur Haukstein Ólafsson frá Akranesi átti hreint ekki í vandræðum með að skera sig úr hópnum þegar hann tryggði sér sigur í graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa 2025. Hann fær í verðlaun 50.000 króna inneign hjá Fjarðakaupum og er nú formlega graskerskonungur landsins.
Knútur, sem hefur skorið út næstum 90 grasker frá árinu 2018, segir að þetta allt hafi byrjað í Bónus á Akranesi. „Ég sá bara grasker í búðinni og hugsaði: „Af hverju ekki að prófa?“ Fyrsta graskerið mitt var bara klassískt brosandi grasker sem ég skar út með þykkum eldhúshníf og var frekar einfalt. En síðan þá hefur þetta bara þróast út í alvöru list,“ segir hann. Hægt er að kynna sér verk hans á Instagram, á kay_z_pumpkins og knuturhaukstein. Nokkur hress grasker úr smiðju Knúts. Vinnuferlið er lengra og flóknara en margur heldur en Knútur vinnur með svokallað stencil-kerfi. Þá prentar hann út mynd á A4 blað, límir hana á graskerið, gatar meðfram útlínum, tekur blaðið af og sker að lokum út. Knútur vinnur með svokallað stencil-kerfi. Hér má sjá dæmi um myndir sem hann skar eftir. Fyrst voru þetta einfaldir broskallar en fljótlega fór þetta að þróast út í flóknari myndir, t.d. kvikmyndapersónur, tónlistarfólk, tölvuleikjapersónur, dýr og stjörnumerki. „Í dag er ég farinn að finna myndir á netinu og jafnvel breyta þeim í Photoshop svo þær séu einfaldari að skera út.“ Ég var átta klukkustundir að skera út Ryan Gosling og þá tel ég pásurnar ekki með. Hér má sjá myndina sem Knútur vann eftir þegar hann skar út Ryan Goslin graskerið. Í ár hefur Knútur m.a. skorið út Al Pacino, André 3000, Kurt Cobain og gítarleikarann John Frusciante. „Einfaldir útskurðir geta tekið 1-2 klukkustundir en flóknari útskurðir eins og andlitsmyndir geta tekið mig allan daginn. Ég var átta klukkustundir að skera út Ryan Gosling og þá tel ég pásurnar ekki með.“ Og hvað ætlar graskerssnillingurinn að gera við verðlaunin? „Ég væri helst til í að kaupa bara fleiri grasker ef það er í boði. En annars þarf ég líka nokkur verkfæri til að breyta Captain Kirk grímu í Michael Myers grímu. Það er spurning hvort ég finni svoleiðis verkfæri í Fjarðarkaupum? Ef það klikkar þá fer inneignin í eitthvað skynsamlegt eins og mat,“ segir hann hlæjandi. Kurt Cobain, söngvari og gítarleikari og lagasmiður rokkhljómsveitarinnar Nirvana. Við óskum Knúti til hamingju og hlökkum nú þegar til að sjá hvað (eða hver) verður næst á graskerinu hans á næsta ári!
FM957 Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Litavalið sem breytti öllu á nýja heimilinu Sbarro tekur næsta skref: Heitar pizzur allan sólarhringinn Myndaveisla: Bylgjulestin kvaddi sumarið á Flúðum Súrdeigsbrauðdrottningin breytti pítsadeigi í þriggja rétta grillveislu Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Optical Studio með vinsælan Pop Up markað með allt að 70% afslætti Bylgjulestin brunar á Flúðir Í festival gír með Icewear Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Vissir þú að JYSK selur bleikan útilegustól? Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Myndir frá Selfossi þar sem Bylgjulestin var í beinni Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Hitavörn, blástursvörn eða UV-vörn? Hvað þarf hárið þitt í raun og veru? Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Glæsilegir vinningar í boði í Sumarleik Kjarnafæðis Bylgjulestin brunar á Kótelettuna Myndir frá Akureyri þar sem Bylgjan var í beinni Nýtir íslenska skessujurt með grillmatnum Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Bylgjulestin fer norður á morgun Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Hlaupaslagur ársins í beinu StuðStreymi frá Dyrfjöllum Ný bókunarvél hjá Úrval Útsýn og fjöldi spennandi ferðamöguleika Sjá meira