Andri Lucas var kóngurinn á King Power í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2025 14:24 Andri Lucas Guðjohnsen fagnar fyrra marki sínu fyrir Blackburn Rovers í dag. Getty/Andrew Kearns Andri Lucas Guðjohnsen skoraði í öðrum leiknum sínum í röð í ensku B-deildinni í dag þegar lið hans Blackburn Rovers gerði góða ferð til Leicester.
Andri Lucas skoraði þá bæði mörk Blackburn í flottum 2-0 sigri á Leicester City en þetta var annar sigur liðsins í röð og kemur liðinu upp í nítjánda sæti deildarinnar. Staðan er ekki góð hjá Leicester sem var að tapa þriðja deildarleiknum í röð en liðið er þó fjórum stigum og átta sætum fyrir ofan Blackburn sem byrjaði tímabilið ekki vel. Andri Lucas kom til Blackburn Rovers í september og náði ekki að skora í fyrstu sex deildarleikjum sínum. Klippa: Mörk Andra Lucasar gegn Leicester Hann skoraði sigurmarkið á móti Southampton um síðustu helgi en markið hans kom á 86. mínútu. Að þessu sinni skoraði Andri Lucas strax á 20. mínútu og kom Blackburn þar með í 1-0. Fyrirgjöf fór af varnarmanni og féll fyrir Andra Lucas sem var réttur maður á réttum stað. Þannig var staðan þar til á 63. mínútu þegar Andri bætti við öðru marki. Mætti þá á nærstöngina og skoraði með föstu skoti upp í þaknetið eftir góðan undirbúning Ryan Alebiosu.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira