Hákon Rafn hélt hreinu þegar Brentford flaug áfram Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. október 2025 21:40 Hákon Rafn spilaði sinn fjórða leik á tímabilinu í kvöld. Mike Egerton/Getty Images Markvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Brentford þegar úrvalsdeildarliðið lagði Jason Daða Svanþórsson og félaga í Grimsby Town 5-0 í enska deildarbikarnum.
Grimsby komst í heimsfréttirnar þegar það sló Manchester United út i sömu keppni fyrr á leiktíðinni en D-deildarliðið átti aldrei séns í kvöld. Staðan var orðin 3-0 gestunum í vil í hálfleik þökk sé mörkum Mathias Jensen, Keane Lewis-Potter og Reiss Nelson. Fabio Carvalho bætti fjórða markinu við af vítapunktinum snemma í síðari hálfleik en skömmu síðar kom Jason Daði inn af bekknum í liði Grimsby. Það var hins vegar Nathan Collins sem skoraði síðasta mark leiksins þegar stundarfjórðungur lifði leiks. Lokatölur á Blundell Park í Grimsby 0-5 og Brentford örugglega áfram í 5. umferð deildarbikarsins. Í öðrum leikjum kvöldsins í enska deildarbikarnum vann Cardiff City 2-1 útisigur á Wrexham. Bæði lið koma frá Wales en leika innan enska knattspyrnusambandsins. Úrvalsdeildarlið Fulham lenti þá í kröppum dansi gegn C-deildarliði Wycombe Wanderers. Staðan að loknum venjulegum leiktíma 1-1 og þar sem ekki er framlengt var gripið til vítaspyrnukeppni. Þar fór Fulham með sigur af hólmi.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Sjá meira