Undirrituðu samkomulag um fágæta málma Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. október 2025 07:09 Trump óskaði Takaichi til hamingju með að verða fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra í Japan. Þá sagðist hann myndu gera allt fyrir Japan. Getty/Andrew Harnik Donald Trump Bandaríkjaforseti og Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japan, hafa undirritað samkomulag um fágæta málma og önnur steinefni.
Trump og Takaichi funduðu í morgun en fyrir fundinn sagðist síðarnefnda vilja stuðla að „gullöld“ í samskiptum Japan og Bandaríkjanna, til að efla ríkin og auka velsæld. Þess má geta að Trump hefur sjálfur ítrekað talað um „gullöld“ í Bandaríkjunum eftir að hann tók aftur við forsetaembættinu. Ofangreint samkomulag er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að stjórnvöld í Kína hafa þrengt reglur um útflutning fágætra málma. Kínverjar og Bandaríkjamenn hafa skipst á skotum í tollastríði síðustu misseri. Trump mun funda með Xi Jinping, forseta Kína, í Suður-Kóreu seinna í vikunni. Takaichi þakkaði Trump í morgun fyrir framlag sitt í þágu friðar á Gasa og á milli Taílands og Kambódíu. Bæði minntust Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra Japan, sem ráðinn var af dögum árið 2022. Trump sagði Abe hafa verið „góðan vin“. Efst á dagskránni í dag eru viðræður um viðskipti og öryggismál en Japanir hafa heitið því að auka innflutning á vörum frá Bandaríkjunum gegn lækkun tolla á japanskar vörur.
Bandaríkin Japan Donald Trump Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira