Gerðið verði besti staðurinn nálægt borginni til að skoða stjörnur Lovísa Arnardóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 21. október 2025 22:00 Gott verður að fylgjast með norðurljósum, stjörnuhröpum og stjörnunum sjálfum í stjörnugerðinu. Vísir/Vilhelm Stjörnugerði var opnað í Heiðmörk í kvöld. Stjörnugerðið á að vera griðarstaður myrkurs og þar á að vera gott að staldra við og glápa á stjörnurnar. Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, kom að opnun gerðisins. „
Þetta er sett upp eins og skeifa og þetta er skjólveggur vegna þess að hér getur oft verið hvöss og nöpur norðanátt,“ segir Sævar og að þá verði auðveldara og betra að horfa til himins. Hann segir að í gerðinu sé fólk komið frá mestu ljósmengun höfuðborgarsvæðisins og því sé þarna hægt að sjá vetrarbrautina, dauf stjörnuhröp og norðurljós. „Þetta er eins gott og það verður fyrir stað sem er tiltölulega nálægt höfuðborginni,“ segir hann og að gerðið sé frábær staður til að sjá náttúruna sem birtist bara á næturnar. Hann segir stjörnubjartar nætur fram undan og mælir með því að fólk fari í gerðið til að njóta þess. Nauðsynlegt sé að klæða sig vel. Stjörnugerðið í Heiðmörk er verkefni sem hlaut brautargengi í kosningum lýðræðisverkefnisins Betri Garðabæjar. Stjörnugerðið er við Búrfellsgjá í Garðabæ. Stjörnugerðið er staðsett við bílastæði við Heiðmerkurveg sem tengist útivistarstíg að Búrfelli og Búrfellsgjá.
Geimurinn Umhverfismál Garðabær Norðurljós Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hvað veistu um… pitsur? Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira