Selja neyðargetnaðarvörn sem lausasölulyf í fyrsta skipti Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. október 2025 23:52 Konur í Japan þurfa ekki lengur lyfseðil. Getty Í fyrsta skipti verður hægt að kaupa neyðargetnaðarvörn sem lausasölulyf í Japan. Almenningur hefur verið samþykkur auðveldara aðgengi í fjölda ára en stjórnvöld töldu konur líklegar til að misnota lyfið væri auðvelt að nálgast það.
Um er að ræða lyf sem veldur breytingum á slímhúð legsins svo að frjóvguð eggfruma nær síður að hreiða þar um sig og kemur í veg fyrir um áttatíu prósenta þunguna. Í tilkynningu frá lyfjafyrirtækinu ASKA Pharmaceutical segir að greiðara aðgengi kvenna að lyfinu efli kynheilbrigði þeirra. Neyðargetnaðarvörn er nú þegar til sölu án lyfseðils í yfir níutíu löndum samkvæmt BBC en í Japan munu konur sem hyggjast taka lyfið gera það í viðurvist lyfjafræðings. Konur á öllum aldri mega taka lyfið og þurfa þær undir lögaldri ekki leyfi foreldra. Japan hefur oftar en ekki verið lengi að samþykkja lyf sem snúa að kynheilbrigði kvenna og er það talið vera vegna íhaldssamra gilda. Áður var einungis hægt að fá lyfið með því að fara á heilsugæslu eða fá lyfseðil hjá lækni. Það kom fyrst til tals árið 2017 hjá japönskum yfirvöldum að selja neyðargetnaðarvörn sem lausasölulyf og var yfirgnæfandi stuðningur meðal íbúa landsins fyrir því. Hins vegar töldu yfirvöld að með því að auðvelda aðgengið myndi það ýta undir óskynsamlega notkun þess. Baráttuhópar hafa talað fyrir auðveldara aðgengi þar sem lyfseðilsskyldan leiddi til þess að ungar konur og þolendur kynferðisofbeldis væru ólíklegri til þess að nýta sér lyfið.
Japan Lyf Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira