Fórnir verið færðar fyrir okkur Björn Ólafsson skrifar 17. október 2025 14:47 Það var svarta myrkur og leiðinda veður, haugasjór og skítakuldi enda komið fram á vetur. Við máttum ekki svo mikið sem kveikja í sígarettu upp á dekki. Við urðum að vera í svarta myrkri. Það mátti ekki sjást í ljóstýru, þegar höfðu amk 2 togarar verið skotnir niður, þjóðverjarnir virtust vera allsstaðar. – Íslenskir sjómenn lögðu líf sitt að veði í siglingunum á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Mikið verð fékkst fyrir fiskinn í Englandi og í bónus fengu þeir sem sigldu; „hræðslupening“, sem kom sér vel á erfiðum tímum. Var faðir þinn eða afi í siglingum á stríðsárunum? Beitan var komin um borð; nóg af úldnu hrossakjöti og rommið, 1-2 pottar á mann. Hákarlinn gat ekki staðist lyktina af kjötinu-, og ekkert beit betur á kuldann en rommið. Það var ekkert að vanbúnaði að halda í hann og reyna fylla allar geymslur af hákarlalýsi. – á sínum tíma gaf hákarlalýsi af sér meiri þjóðartekjur en sjálfur þorskurinn. Lýsið lýsti upp London. -Þetta er ekki svo fjarlægt í tíma; langafi þinn gæti hafa verið á hákarlaveiðum. Allt frá landnámi, hafa menn lagt líf sitt að veði til þess að draga björg í bú. Þúsundir sjómanna hafa látið lífið á Íslandsmiðum – Sjórinn gefur, sjórinn tekur, var sagt í den. Við sem hér búum eigum fórnum forfeðra, formæðra, og gjöfulum fiskimiðum allt að þakka. Dropinn holar steininn; því segi ég enn; við þurfum að gefa sjávarauðlindum okkar meiri gaum. Framtíð okkar til lengri tíma, veltur á því að við förum vel með þessar mikilvægustu auðlind okkar og nýtum af kostgæfni til framtíðar. Því miður er staðreyndin sú, að við höfum gert stór og dýr mistök. Þannig að þegar hafa verðmætir stofnar horfið um tíma sem nytjastofnar og aðrir ekki að dafna eða rétta úr sér eins og stefnt var að. Ég hef lengi gagnrýnt Hafró, sem hefur gengt lykilhlutverki í nýtingu sjávarauðlinda okkar. Og, það ekki af ástæðulausu. Veiðiráðgjöf Hafró hefur mikil þjóðhagsleg áhrif, en ekki síður en á vistkerfi sjávar. Með nær aldar gamlar kenningar í forgrunni Hafró hefur alla tíð átt í vandræðum með að áætla stofnstærðir, og hefur marg oft leiðrétt áætlanir sínar aftur í tímann. Enda vinnur stofnunin eftir kenningum/reikniformúlum sem eru nær 100 ára gamlar; „MSY“, maximum sustainable yield,hámarks sjálfbær nýting stofns. Hugmyndin og reikniformúlurnar sem MSY byggist á komu fyrst fram um 1930 en hefur þróast með tímanum, og er víða notuð. Þessi aðferðarfræði; einblínir á hvern fiskistofn/nytjastofn án tillits til áhrifa sem stofnar hafa sín á milli, og vistkerfið í heild. Þessi gamla aðferðarfræði hefur setið undir mikilli gagnrýni um árabil og er á hröðu undanhaldi. Ég tel ein mestu mistökin hjá Hafró, að hafa ekki þróast meir í starfi sínu, meðtekið nútíma hugmyndafræði í sínum vísindum. Hver kenningin sem Hafró vinnur eftir hefur verið afsönnuð. Þar á meðal kenningin um að stofnar vaxi í beinu hlutfalli við stærð hrygningarstofns. Þá hefur Hafró nær alfarið litið fram hjá þeim áhrifum sem fiskistofnar hafa sín á milli. Hafró hefur alfarið brugðist í að líta á hafið sem flókið vistkerfi,. Er það tilviljun að hver 7 ára þorskur er um 1,5kg léttari í dag en fyrir loðnuveiðar? Er þorskurinn að éta meira undan sjálfum sér en áður? Er það vegna skorti á fæðu og eða er þorskstofninn “of stór”? Nýliðun hjá mörgum nytjastofnun hefur hrunið, afhverju? Hafró hefur engin svör. Hlutverk loðnu vanmetið Loðnan flytur inn meiri orku inn í vistkerfi sjávar hér við land en nokkur önnur fiskitegund. Prótein loðnunnar er fullkomið fyrir arðræningja til vaxtar og þroska. Nytjastofnar, eins og þorskur, finnur ekkert álíka protein í stað þess sem hann fær úr loðnu. Sérfræðingum Hafró þarf ekki að segja hver er drifkraftur alls lífs í hafinu, en samt lítur stofnunin alveg fram hjá hinu stórmerka hlutverki loðnunnar. Hún er ein fárra fiskitegunda sem lifir á dýrasvifi og flytur þannig meiri “orku” inni í vistkerfið en flestar aðrar lífverur. Dauð loðna er mikilvægur áburður fyrir botnlífið og á þannig stóran þátt í hringrás lífsins í hafinu. Hafró hefur tekið sér það guðdómlega vald að :”reikna út hvað náttúran þarf að loðnu” – orð forstjórans sem nýlega lét af störfum. Þessi fullyrðing lýsir fullkomlega þeim fílabeinsturni sem stofnunin býr í. Gífurlegar tækniframfarir Miklar framfarir eru að verða í sjávarrannsóknum. Með tilkomu gervigreindar og e-DNA(umhverfis DNA) eru að opnast nýir heimar neðansjávar. Tæknin er ótrúleg. Nú er farið að blanda saman sýnatöku úr hafinu, neðarsjávarmyndatöku og gervigreind til að vinna úr upplýsingunum. Neðansjávar smá kafbátar eru notaðir til að taka sýni sem hægt er að sjá hvort t.d. þorskur eða aðar tegundir eru á eða hafa verið á svæðinu. Jafnvel má sjá hversu mikið magn af ákveðinni tegund er eða hefur verið á svæðinu. Með nýrri myndavélatækni má taka myndir sem áður var ómögulegt. Gervihnettir eru í auknum mæli notaðir til að taka myndir af hafsvæðum, sem síðan eru notaðar til að skoða þörnungablóma ofl. Engin leið er að hafa orð eða hugmyndaflug til að lýsa því sem framundan er þegar tæknin er annarsvegar. Frá árinu 2023 hafa fundist nær 1000 nýjar tegundir af sjávarlífverum. Vísindfólk telur að enn þekkjum við ekki nema um 10% af öllum þeim tegundum sem eru í vistkerfi sjávar. Hafró hefur fengið nýtt skip og mikilvægt er að tryggja stofnunni þau tæki og tól sem þarf til að nýta sér nýjustu tækni, svo við sem þjóð getum verið í farabroddi í hafrannsóknum. Tími nýrra tækni og vísinda til að meta ástand og sjálfbærni nytjastofna er runninn upp. Hanna Katrín í dauðafæri Á vef Hafró segir: “….gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna” . Í um 40 ár hafa stjórnvöld nánast fært ábyrgð sína yfir á Hafró, og fylgt ráðgjöfinni gagnrýnislaust. Ráðgjöf sem stofnunin hefur alla tíð varið með kjafti og klóm, og aldrei meðtekið neina gagnrýni hvorki frá vísindafólki utan stofnunarinnar eða reyndum skipstjórnarmönnum. Nú er lag. Nýr forstjóri Hafró verður skipaður fljótlega. Gífurlega mikilvægt er, að skipaður verði forstjóri sem mun leiða stofnunina í átt nútímilegra og framsækinna vísinda. Hanna Katrín, atvinnutvegaráðherra, hefur sýnt að hún hefur kjark og þor til að taka á erfiðum málum. Nú er hún í dauðafæri til að leiða Hafró inn í nýja tíma. Að ráða í starf forstjóra, sem mun innleiða breytingar og gagnrýn vinnubrögð í stofnunina. Og, að framvegis muni ráðherra láta rýna þá veiðiráðgjöf sem Hafró mun gefa, en ekki taka gagnrýnislaust við ráðgjöf sem hefur svo mikil þjóðhagsleg áhrif. Höfundur er útgerðartæknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun