Páll Baldvin fer fram gegn tillögu kjörnefndar Árni Sæberg skrifar 17. október 2025 13:25 Páll Baldvin Baldvinsson býður sig fram til formanns Leikfélags Reykjavíkur en kjörnefnd félagsins hefur þegar lagt fram tillögu um lista með Magnús Ragnarsson í formannssætinu. Vísir/Vilhelm/Ívar Fannar Páll Baldvin Baldvinsson býður sig fram til formanns stjórnar Leikfélags Reykjavíkur. Kjörnefnd félagsins hefur þegar lagt fram tillögu að lista með Magnús Ragnarsson sem formannsefni. Því stefnir í kosningabaráttu um stjórnina.
Páll Baldvin greindi frá framboðinu í færslu á Facebook um hádegisbil. „Hópur félaga í Leikfélagi Reykjavíkur hefur orðið ásáttur um að bjóða fram til kjörs nýrrar stjórnar Leikfélags Reykjavíkur á komandi aðalfundi félagsins þann 28. október. Við erum: Páll Baldvin Baldvinsson, formaður Karen María Jónsdóttir, varaformaður Helga I. Stefánsdóttir, ritari Hilmir Snær Guðnason, meðstjórnandi Ólafur Ásgeirsson, meðstjórnandi Magnús Árni Skúlason, varamaður Þeir sem hafa áhuga á að gerast félagsmenn (ef þeir eru það ekki fyrir) geta skráð sig á heimasíðu Borgarleikhússins en þar er félagið kynnt og lög þess birt,“ skrifar hann í færslunni. Leikfélag Reykjavíkur er sjálfseignarstofnun sem rekur Borgarleikhúsið í Reykjavík með tilstyrk Reykjavíkurborgar, stendur fyrir sviðsetningum hússins, hýsir sjálfstæða leikhópa og Íslenska dansflokkinn. Magnús í formanninn og Ingibjörg Sólrún í meðstjórnanda Í fundarboði fyrir aðalfundinn sem var sent út 10. október síðastliðinn kom fram að kjörnefnd félagsins, skipuð Kristínu Eysteinsdóttur, formaður, Ragnheiði Skúladóttur og Þórólfi Árnasyni, hefði lagt fram tillögu að stjórn Leikfélags Reykjavíkur fyrir næsta þriggja ára kjörtímabil. Hún er svohljóðandi: Magnús Ragnarsson, formaður Björgvin Skúli Sigurðsson, varaformaður Karen María Jónsdóttir, ritari Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, meðstjórnandi Jóhanna Vigdís Arnardóttir, meðstjórnandi Einar Örn Benediktsson, varamaður Því er ljóst að það stefnir í baráttu og formannsslag á aðalfundi Leikfélags Reykjavíkur 28. október næstkomandi.
Borgarleikhúsið Reykjavík Leikhús Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Fleiri fréttir Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira