Tíu marka kvöld hjá Orra í Meistaradeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. október 2025 20:31 Orri Freyr Þorkelsson var í mjög stóru hlutverki hjá Sporting Lissabon í kvöld. @SCPModalidades Orri Freyr Þorkelsson átti sannkallaðan stórleik í kvöld í Meistaradeildinni í handbolta. Það voru fullt af íslenskum handboltamönnum í eldlínunni í Meistaradeildinni í kvöld.
Enginn þeirra lék þó betur en Hafnfirðingurinn Orri Freyr Þorkelsson sem skoraði tíu mörk í eins marks heimasigri Sporting á ungverska stórliðinu One Veszprém. Orri Freyr og Francisco Mota Costa voru allt í öllu hjá Sporting en það var Mota Costa sem skoraði sigurmarkið á lokasekúndunum. Hann var þar að skora sitt tíunda mark. Orri nýtti tíu af þrettán skotum sínum í leiknum en hann klúðraði einu af sjö vítaskotum sínum. Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk fyrir Veszprém í kvöld. Sporting endaði þar með tveggja leikja taphrinu sína í Meistaradeildinni en bæði liðin eru jöfn með sex stig úr fimm leikjum. Kolstad tapaði með ellefu mörkum á útivelli á móti þýska liðnu Füchse Berlin, 38-27. Refirnir voru komnir fimm mörkum yfir í hálfleik, 19-14. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði fimm mörk fyrir Kolstad og Sigvaldi Björn Guðjónsson var með þrjú mörk. Sigurjón Guðmundsson varði tvö skot í markinu. Arnór Snær Óskarsson komst ekki á blað. Benedikt Gunnar gaf einnig tvær stoðsendingar en hann skoraði úr fjórum af fimm skotum sínum. Norðmaðurinn Tobias Gröndahl skoraði níu mörk fyrir Füchse og Daninn Mathias Gidsel var með átta mörk. Kolstad hefur tapað fjórum af fyrstu fimm leikjum sínum í Meistaradeildinni en Füchse Berlin er á toppnum með fimm sigra í fimm leikjum.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira