Handbolti

Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kafla­skiptum leik

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk úr hægra horninu.
Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk úr hægra horninu. Ayman Aref/NurPhoto via Getty Images

Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum í stórskemmtilegum 30-27 sigri Veszprém á útivelli gegn Dinamo Búkarest í þriðju umferð Meistaradeildarinnar.

Leikurinn var mjög kaflaskiptur. Liðin skiptust á að taka sín áhlaup í fyrri hálfleik en staðan var jöfn í hálfleik, 15-15, og enn jöfn eftir fjörutíu mínútur, 18-18.

Þá þurfti Veszprém að spila manni færri nánast fjórar mínútur í röð eftir að Bjarki og liðsfélagi hans Patrik Ligetvari fengu tveggja mínútna brottvísanir með skömmu millibili.

Dinamo nýtti tækifærið og tók tveggja marka forystu, 22-20, en þá átti Veszprém langbesta áhlaup leiksins. Gestirnir skoruðu átta af næstu níu mörkum og voru 23-28 yfir þegar tæpar átta mínútur voru eftir.

Svo var komið að Dinamo á lokasprettinum og heimamönnum tókst að minnka muninn niður í tvö mörk, en þurftu að sætta sig við þriggja marka tap, 27-30.

Veszprém hefur nú unnið tvo í röð eftir tap gegn Álaborg í fyrstu umferðinni.

Orri fullnýtti sín færi í tapi gegn Álaborg

Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk úr sex skotum fyrir Sporting í 35-30 tapi á útivelli gegn Álaborg í kvöld.

Heimamenn í Danmörku voru með yfirhöndina frá upphafi og portúgölsku gestirnir voru sex mörkum undir þegar flautað var til hálfleiks. Sporting spilaði langa kafla án þess að skora í fyrri hálfleik, Orri setti til dæmis tvö mörk í röð úr vítum á 9. og 10. mínútu en hann og liðið skoruðu ekki aftur fyrr en á 15. mínútu.

Svipaða sögu er að segja af seinni hálfleiknum. Orri bætti þremur mörkum til viðbótar við sinn reikning, en Sporting var aldrei nálægt því að jafna og fimm marka tap varð niðurstaðan.

Þetta var fyrsta tap Sporting sem hafði áður unnið gegn Kielce á heimavelli og Dinamo á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×