Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal skrifar 23. september 2025 13:30 Í drögum Hafrannsóknastofnunar að nýju áhættumati erfðablöndunar koma fram þrjár gerólíkar sviðsmyndir um hver þróunin verður í sjókvíaeldi á laxi við Ísland á næstu árum. Þar á meðal ein sem markar endalok áætlana um að opið sjókvíaeldi af iðnaðarskala verði leyft við landið. Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum teljum einsýnt að sú leið hljóti að verða niðurstaðan nema yfirvöld taki meðvitaða ákvörðun um að skauta framhjá því sem hefur gengið á undanfarin ár og staðfest hefur verið með rannsóknum. Áhættumatið ræður þróuninni Áhættumat erfðablöndunar stýrir hversu umfangsmikið sjókvíaeldi á laxi getur verið við Ísland án þess að skaða villta laxastofninn okkar. Það er útaf fyrir sig afar umdeild hugmynd Hafrannsóknastofnunar en er ekki efni þessarar greinar. Núverandi þak gerir ráð fyrir að 106.500 tonn af eldislaxi geti verið í sjókvíum við landið. Það er ígildi um 55 milljóna laxa. Til samanburðar telur íslenski villti stofninn um 70.000 fiska, eða 0,1 prósent af þeim fjölda eldislaxa. Sjókvíaeldisfyrirtækin eru nú með í kvíum sínum um helming af leyfilegum 106.500 tonnunum og stefna að því að fullnýta leyfin eins fljótt og þau geta. Hafrannsóknastofnun skal samkvæmt lögum endurskoða áhættumatið á þriggja ára fresti og fyrr ef ástæða er til. Þetta mat er því algjört lykiltæki um hver þróunin verður í þessum mengandi iðnaði. Þrjár sviðsmyndir Þetta eru sviðsmyndirnar þrjá í drögunum að nýja matinu (sjá einnig mynd sem hér fylgir): Þrjár sviðsmyndir úr nýjum drögum að áhættumati erfðablöndunar. Án mótvægisaðgerða má magn eldislaxaí sjókvíum ekki vera meira en 5.900 tonn.Hafrannsóknastofnun Íslands 1) 106.500 tonn (ígildi um 55 milljóna eldislaxa í kvíum) Þetta er óbreytt magn sem miðast við það sem stofnunin kallar „virkar mótvægisaðgerðir“. Þær snúast um tvennt: A) Mótvægisaðgerðir sem eiga að koma í veg fyrir að eldislaxinn verði kynþroska í sjókvíunum þannig að hann leiti síður upp í ár þegar hann sleppur og B) Mótvægisaðgerðir í ám sem felast í að hreinsa burt eldislax sem gengur í þær til að takmarka möguleika þeirra á að taka þátt í hrygningu með villtum laxi. 2) 50.000 tonn (ígildi um 25 milljóna eldislaxa í kvíum) Þetta er magnið ef engar virkar mótvægisaðgerðir eru í ám. 3) 5.900 tonn (ígildi um 3 milljóna eldislaxa í kvíum) Þetta er magnið ef bæði er óvirkt: mótvægi við kynþroska og mótvægi í ám. Af þessum forsendum gefnum má strax slá af möguleikann á 106.500 tonnum. Augljóst er að bændur og aðrir eigendur lögbýla þar sem um renna ár með laxi munu ekki taka í mál að lögfestar verði mótvægisaðgerðir til að greiða fyrir starfsemi sjókvíaeldisfyrirtækjanna. Fráleitt er að gera ráð fyrir að slíkt hreinsunarstarf verði árlegur viðburður því þetta eru gríðarlega ágengar aðgerðir. Dregið er á með netum eða kafarar fara um með spjótbyssur í leit að eldislöxum. Öll þessi umferð hefur í för með sér mikla truflun á lífríki ánna og skaðar þar að auki með óafturkræfum hættu ásýnd vatnsfallanna.Við þetta bætist svo kjarni málsins: Óraunhæft er að ná nema hluta af eldislöxum sem hafa sloppið. Að hreinsa ár ef eldislaxi er neyðaraðgerð sem er aðeins möguleg í ám sem eru ekki vatnsmiklar. Eldislaxar ganga langt fram á haust þegar viðveru stangveiðifólks við árnar er lokið og eldislaxar geta verið án útlitseinkenna og því ekki hægt að tryggja að þeir verði fjarlægðir. Veruleikinn annar í raun Eru 50.000 tonn af eldislaxi í sjókvíum við landið þá raunhæfur möguleiki? Nei, í fyrsta lagi vegna þess að rannsóknir sýna að hinar meintu mótvægisaðgerðir til að koma í veg fyrir kynþroska í sjókvíunum hafa alls ekki gengið. Þannig var samkvæmt okkar heimildum mjög hátt hlutfall eldislaxa kynþroska í sjókvíum Háafells í Ísafjarðardjúpi í sumar þrátt fyrir að fyrirtækið hafi farið eftir reglugerð um ljósastýringu sem átti samkvæmt fræðum Hafrannsóknastofnunar að koma í veg fyrir að það gæti gerst. (Ljósastýring er stöðug lýsing - eilíft sumar - í sjókvíunum yfir skammdegið sem ruglar eðlilegan þroska laxanna.) Þar með er þessi hluti mótvægisaðgerðinna fallinn. Er þetta ekki í fyrsta skipti sem raunveruleikinn er annar en stuðningsmenn sjókvíaeldis innan stofnunarinnar hafa reiknað með. Í öðru lagi hefur Hafrannsóknastofnun engar áþreifanlegar rannsóknir sem staðfesta að ókynþroska eldislax verði ekki kynþroska í náttúrunni þegar hann sleppur úr sjókví. Þvert á móti eru sérfræðingar utan stofnunarinnar sammála um að það muni einmitt gerast. Samandregið: Þær mótvægisaðgerðir sem Hafrannsóknastofnun nefnir eru annað hvort ekki inni í myndinni (í ánum) eða hafa reynst byggðar á aðferðarfræði sem virka illa eða ekki. Niðurstaðan hlýtur þá að vera að magn eldislaxaí sjókvíum má ekki vera meira en 5.900 tonn, eða 95% samdráttur frá 106.500 tonna þakinu. Aðrar alvarlegar gloppur Rétt er að færa til bókar að þau atriði sem hafa verið rakin hér að ofan byggja eingöngu á rýni á drögum áhættumatsins á þess eigin forsendum. Ýmsar alvarlegar gloppur eru hins vegar á þeim forsendum sem stofnun gefur sér. Á það benti meðal annars vinnunefnd Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) í úttekt sinni síðastliðinn vetur og lagði til að Hafrannsóknastofnun myndi efna til nýrrar vinnustofu um þá stuðla sem áhættumatið byggir á. Að Hafrannsóknastofnun hafi kosið að fara ekki eftir þeirri ráðgjöf er stórfurðulegt og því miður aðeins til að ala á vantrausti í garð stofnunarinnar. Höfundur er talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Kaldal Hafrannsóknastofnun Sjókvíaeldi Mest lesið Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar