Braut lítt notaða reglu: „Þetta er mjög áhugavert“ Sindri Sverrisson skrifar 22. september 2025 09:00 Lucas Bergvall á ferðinni gegn Brighton um helgina. Getty/Robin Jones Svíinn ungi Lucas Bergvall braut reglu sem sjaldan er notuð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina og sérfræðingar Sunnudagsmessunnar á Sýn Sport höfðu gaman af.
Bergvall hefur verði flottur fyrir Tottenham, ekki síst eftir komu stjórans Thomas Frank og á þessu tímabili skorað eitt mark og átt tvær stoðsendingar í sex leikjum í úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. Það var hins vegar tilraun hans til að gera eitthvað nýtt, í hornspyrnu gegn Brighton á laugardag, sem vakti athygli og var meðal þess sem skoðað var í Sunnudagsmessunni í gær. Klippa: Bergvall braut reglu Bergvall hljóp þá aftur fyrir mark Brighton til að losa sig við varnarmann og fá mögulega frían skalla. Hann komst þó fljótt að því að slíkt er bannað því dómarinn Chris Kavanagh sá til hans og flautaði. „Þetta er mjög nýtt. Ég held að þetta megi nú reyndar ekki, hlaupa þarna aftur fyrir, en þetta er flottur leikmaður,“ sagði þjálfarinn þrautreyndi Ólafur Kristjánsson. „Mér finnst hann virkilega góður. Rosalega kraftmikill inni á miðsvæðinu og passar vel með [Joao] Palhinha sem heldur jafnvægi á liðinu. Getur hlaupið út á kanta og… þetta er mjög áhugavert,“ sagði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir létt þegar hlaupið hjá Bergvall var sýnt aftur. „Það sem kemur mér mest á óvart er að hvorki Arsenal né Víkingur hér heima hafi verið búin að testa hvort að þetta megi,“ bætti stjórnandinn Kjartan Atli Kjartansson við en atvikið má sjá hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira