Reikna með gosi í lok mánaðar Árni Sæberg skrifar 16. september 2025 14:10 Frá síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni. Björn Steinbekk Mælingar sýna að kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram með svipuðum hraða og undanfarið. Niðurstöður líkanreikninga áætla að um átta til níu milljónir rúmmetra kviku hafi safnast frá síðasta eldgosi sem hófst 16. júlí. Magnið sem hljóp úr kvikusöfnunarsvæðinu í því gosi var áætlað um tólf milljónir rúmmetra. Talið er að eldgos geti hafist hvenær sem er en hættumat er óbreytt enn sem komið er.
Í uppfærslu á vef Veðurstofunnar segir að út frá fyrri atburðum á Sundhnúksgígaröðinni aukist líkurnar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi þegar jafn mikið af kviku hefur safnast fyrir undir Svartsengi og hljóp út í síðasta atburði. Minna magn en fyrir síðasta gos Ef söfnunarhraðinn helst óbreyttur verði þessu magni náð í seinni hluta þessa mánaðar, líkt og hafi komið fram við síðustu uppfærslu hættumatskorts. Reynslan sýni þó að mörkin á því hvenær atburður hefst séu breytileg á milli gosa. Í sumum tilfellum hafi gos hafist við minna magn, í öðrum tilfellum hefur þurft meira magn. „Þess vegna er gert ráð fyrir að eldgos geti hafist hvenær sem er, jafnvel þótt kvikusöfnun sé enn undir tólf milljónum rúmmetra.“ Óbreytt hættumat Þó segir að hættumatskort verði að þessu sinni óbreytt en í ljósi þess að sama magn af kviku og fór út í síðasta gosi verði náð í lok september verði hættumatskortið endurskoðað í næstu viku. Það sé því í gildi frá 16. september til 23. september. Veðurstofa Íslands
Eldgos á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Grindavík Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira