Ríkisstjórn lobbýistanna Jón Ferdínand Estherarson skrifar 8. september 2025 08:32 Kynnt var á dögunum nýtt atvinnustefnuráð, hugmynd runnin undan rifjum Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar. Ráðið er hluti af yfirlýstum tíma „stórframkvæmda“ sem sé hafinn að nýju en í því eigi engir „lobbýistar“ að sitja og skara eld að sinni köku. Helstu markmið þessa ráðs er að beita sér fyrir „svæðisbundnum hagvexti út á landi“ og að samhliða verið ráðist í „einföldun leyfisveitingaferlis og byggingareglugerðar“. Kaldhæðnislega var það Davíð Oddsson sem gerði garðinn eitt sinn frægan með sínu stöðuga stríði gegn reglugerðarfargani hins opinbera. Báknið og reglugerðir þess flæktu um of fyrir hinum göfuga markaði sem myndi leysa öll okkar vandamál og búa til samfélag allsnægta ef við myndum bara hundskast til að vera ekki fyrir. Við munum hvernig það endaði. Einhver örvænting hlýtur þó að leika um innantóma sali Valhallar þessa dagana þegar að helsti pólitíski keppinautur íhaldsins, Kristrún Frostadóttir, er farin að leita svona langt út á þeirra nýfrjálshyggjumið. Að „einfalda“ reglur og sýna „aðhald“ í ríkisrekstri er viðkvæði ríkisstjórnarinnar. Túlkað yfir á mannamál þá ætlar Samfylkingin að grafa undan öryggi og eftirliti, vega að náttúrunni og fara í heiftarlegan niðurskurð og töfra fram með því uppgang í efnahaginum. Að atvinnustefnuráði Glæstar yfirlýsingar fylgdu tilkynningunni síðasta fimmtudag, nýjir tímar í umbótastefnu nýrrar ríkisstjórnar og engir „lobbýistar“ hér sagði Kristrún og fjölmiðlar tóku allir flaðrandi undir. Athyglisvert væri, þótti blaðamönnum, að í nýju atvinnustefnuráði væru engir hagsmunaaðilar og fulltrúar atvinnulífsins úr hefðbundnum áttum Samtaka atvinnulífsins, ferðamannaiðnaðarins eða stórútgerðinni. En hver er þá í þessu atvinnustefnuráði? Nana Bule, ráðgjafi hjá Goldman Sachs Robert Jan-Smits, fyrrverandi Forseti tækniháskólans í Eindhoven Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs og aðstoðarforstjóri Alvotech Gylfi Zoega hagfræðiprófessor Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu Við fyrstu sýn svelgdist mér á kaffisopanum að lesa þessar fréttir. Þegar einhver montar sig af því að hafa sveigt af braut hagsmunaaðila og lobbýista þá hefði ég ekki giskað að þess í stað yrði skipaður ráðgjafi frá ofurbankanum á Wall Street, Goldman Sachs. Nana Bule vann áður í 20 ár sem framkvæmdastjóri Microsoft í Danmörku og á Íslandi og er að eigin sögn „atvinnu stjórnarmeðlimur“ þar sem hún situr í stjórnum Novo Nordisk Foundation, Arla Foods og er formaður stjórnar Carbfix. Á sama tíma er hún rekstrarráðgjafi eignastýringar hjá Goldman Sachs. Á mannamáli þá hjálpar hún ofurríku fólki að fjárfesta ofurauð sínum. Velta má þó fyrir sér hvaða verðmætu innsýn Nana hefur á landsbyggðarmálum á Íslandi eftir sína löngu veru í fundarsölum stórfyrirtækja, lengst af utan landsteinanna. Robert Jan-Smits er bjúrókrati frá Hollandi sem hefur unnið fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í fjölda ára og eflaust þykir gott að lauma þannig inn smá aðlögunarferli fyrir landsbyggðina á vegum Samfylkingarinnar. Robert vann á árum áður fyrir viðskiptaráðuneyti Hollands í tíð hægri íhaldsstjórnar þar í landi. Eftir sem áður kann maður að velta vöngum yfir því hvaða töfraseið Robert ætlar að galdra fram fyrir íslenskan efnahag utan höfuðborgarinnar með áratugalanga reynslu sína úr skrifræðinu í Brussel. Tanya Zharov situr í ráðinu sem aðstoðarforstjóri lyfjarisans og tilvonandi leikskólafrömuðar, risa fyrirtækisins Alvotech. Stutt skopp yfir hennar ferilskrá segir frá löngum ferli við lögfræðiráðgjöf hjá Íslenskri erfðagreiningu. Inn á milli starfaði hún líka fyrir Auður Capital, fjárfestingasjóð og er sérhæfð í bandarískum og alþjóðlegum markaðslögum og fjármálamörkuðum. Ja hérna hér hvað það hlýtur að koma að góðum notum til að efla atvinnutækifæri í íslenskri sveit! Gylfi Zoega hagfræðingur og prófessor er eini aðilinn sem gegnir fulltrúastöðu íslensks fræðasamfélags í atvinnustefnuráði. Hvort maður eigi að óska honum til hamingju eða vorkenna skal ég ekki segja. Pétur Óskarsson er framkvæmdastjóri hjá Íslandsstofu. Stjórn Íslandsstofu er skipuð 7 einstaklingum, 3 sem skipaðir eru af ráðherrum ríkisstjórna og 4 sem skipaðir eru af Samtökum atvinnulífsins. Pétur var ráðinn í núverandi starf árið 2018 undir formennsku Björgólfs Jóhannessonar, af Samherja-frægð og hafði Pétur þá áður unnið sem framkvæmdastjóri hjá Icelandair Group, unnið fyrir Símann, Framtakssjóð Íslands, Skipti og Íslandsbanka. Þá hafði hann þegar gegnt stjórnarsetu í Samtökum atvinnulífsins, Samtökum ferðaþjónustunnar og Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins. Obbobbobb, engir lobbýistar hér! Atvinnustefnuráð hefur sko enga auvirðilega lobbýista þökk sé Kristrúnu Frostadóttur fyrrum starfsmaður á skrifstofu seðlabankastjóra 2009–2010, hagfræðingur í greiningardeild Arion banka 2011–2012, blaðamaður á Viðskiptablaðinu 2013–2014, hagfræðingur í vinnuhópi á vegum forsætisráðuneytis 2014, sérfræðingur í greiningardeild fjárfestingarbankans Morgan Stanley í New York og Lundúnum 2015–2017, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands 2017, formaður verðlagsnefndar búvara í atvinnumálaráðuneyti 2017–2018, aðjúnkt við hagfræðideild HÍ 2018–2020 og aðalhagfræðingur Kviku banka hf. 2018–2021. Þvert á móti mun atvinnustefnuráð hringja inn glæsta tíma stórframkvæmda og allsnægta með auðhyglandi ráðum og andreglugerðar dáðum frá Wall Street og fjármálamörkuðum, framkvæmdastjórum alþjóðlegra stórfyrirtækja og stjórnarmeðlimum og vildarvinum Samtaka atvinnulífsins, ferðaþjónustunnar og stórútgerðarinnar. Með smá ESB-glimmeri líka og veslings Gylfa Zoega. Algerlega hagsmunalaust. Tími til kominn að fagna á íslenskri landsbyggð. Frelsararnir eru mættir! Höfundur er í stjórn Sósíalistaflokks Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun ,,Taktu lyfin þín“ Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Hver bauð Baudenbacher? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Kúvending eða ferð til fjár? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hinsegin fólk á vinnumarkaði – Frá tölum til aðgerða Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin er heimskur, síljúgandi siðblindingi Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ein borg, minna kerfi og betri nýting fjármuna Sölvi Breiðfjörð skrifar Skoðun Það er margt sem ég ekki skil Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar