Ein sú besta gæti snúið aftur eftir 20 mánaða fjarveru Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 5. september 2025 06:01 Loks að snúa aftur. EPA-EFE/NEIL HALL Knattspyrnukonan Sam Kerr hefur ekki spilað síðan hún sleit krossband í hné á æfingu í janúar 2024. Hún gæti snúið aftur á völlinn þegar efsta deild kvenna á Englandi hefst síðar í dag, föstudag.
Hin 31 árs gamla Kerr hefur verið hjá Chelsea frá árinu 2020 og verið ein albesta knattspyrnukona heims á þeim tíma. „Ég er ekki viss hvort hún byrji eða komi inn af bekknum,“ sagði Sonia Bompastor, þjálfari Chelsea, en staðfesti þó að Kerr væri í hópnum sem myndi mæta Manchester City. „Hún er á góðum stað andlega. Fólk vill sjá hana á vellinum, hún er reynslumikil en hefur verið frá keppni í langan tíma. Við þurfum að sýna þolinmæði. En það er stórt skref fyrir hana að vera í leikmannahópnum,“ sagði Sonia einnig. Kerr hefur til þessa skorað 58 mörk í 75 deildarleikjum fyrir Chelsea. Þá hefur hún fimm sinnum orðið Englandsmeistari. Það verður þó ekki sagt að Chelsea hafi saknað hennar á síðustu leiktíð þegar liðið stóð uppi sem Englands-, bikar- og deildarbikarmeistari. Remembering last season. 💭 pic.twitter.com/RLevJU06Dw— (C)helsea FC Women 🏆🏆🏆 (@ChelseaFCW) September 3, 2025 Chelsea er hins vegar án Mayra Ramirez, Lucy Bronze og Lauren James í upphafi móts svo endurkoma Kerr gæti vart komið á betri tíma.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira