Fullkomin byrjun Everton á nýja heimilinu Sindri Sverrisson skrifar 24. ágúst 2025 14:59 Iliman Ndiaye í faðmi Jack Grealish eftir að hafa skorað fyrsta mark Everton á nýja heimavellinum. Getty/Clive Mason Everton hefði vart getað óskað sér betri byrjunar á hinum nýja og glæsilega Hill Dickinson leikvangi en þegar liðið vann Brighton, 2-0, í dag. Crystal Palace og Nottingham Forest gerðu 1-1 jafntefli.
Iliman Ndiaye skoraði fyrsta markið á nýja heimavellinum, á 23. mínútu, eftir snarpa sókn og fyrirgjöf frá Jack Grealish. Grealish átti svo einnig sendingu á James Garner sem skoraði seinna markið með frábæru þrumuskoti utan teigs á 52. mínútu. Everton-menn geta þakkað Jordan Pickford fyrir að hafa ekki fengið á sig mark í dag því Brighton fékk nóg af færum og eina vítaspyrnu, sem Pickford varði frá Danny Welbeck á 77. mínútu. Áður hafði Pickford varið frábærlega í fyrri hálfleiknum eftir skelfilega sendingu James Tarkowski í átt að honum, og Kaoru Mitoma átt skot í þverslána eftir að hafa komist í dauðafæri, en heimamenn héldu hreinu og fögnuðu sínum fyrsta sigri á leiktíðinni. Í Lundúnum gerðu Palace og Forest eins og fyrr segir jafntefli, í uppgjöri liðanna sem skiptu á Evrópukeppnum í sumar, eftir að Palace var dæmt til að spila í Sambandsdeildinni vegna eigendamála. Ismaila Sarr kom Palace yfir á 37. mínútu með viðstöðulausu skoti úr miðjum vítateignum, eftir sendingu frá Daniel Munoz. Callum Hudson-Odoi jafnaði svo á 57. mínútu eftir magnaða stungusendingu frá Dan Ndoye.
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira