Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. ágúst 2025 07:30 Lucas Paquetá fer ekki í lífstíðarbann. EPA-EFE/ISABEL INFANTES Lucas Paquetá, miðjumaður West Ham United í ensku úrvalsdeildinni og brasilíska landsliðsins, hefur verið hreinsaður af ásökunum sínum um veðmálasvindl.
Hinn 27 ára gamli Paquetá var hreinsaður af ásökunum fyrir brot á veðmálareglum enska sambandsins fyrr í dag þann 31. júlí. Um var að ræða tveggja ára rannsókn vegna undarlegra veðmál a sem höfðu átt sér stað í kringum áminningar sem Paquetá fékk í leikjum með West Ham. Eftir óháða rannsókn kom í ljós að ekki væri hægt að sanna að Paquetá væri sekur og hann því hreinsaður af ásökunum. Rannsóknin gerði það að verkum að möguleg vistaskipti Paquetá til Manchester City féllu upp fyrir. Hann hélt þó áfram að spila fyrir West Ham og Brasilíu. „Frá fyrsta degi hef ég haldið fram sakleysi mínu er kemur að þessum alvarlegu ásökunum. Ég get ekki sagt neitt meira á þessari stundu en vil þó segja hversu þakklátur ég er Guði og að ég get ekki beðið eftir að spila fótbolta á ný með bros á vör,“ sagði leikmaðurinn eftir að niðurstaðan var ljós. Þá þakkaði Paquetá eiginkonu sinni, West Ham, stuðningsfólki West Ham, fjölskyldu og vinum fyrir stuðninginn. Í yfirlýsingu frá enska sambandinu segir að þó Paquetá hafi ekki verið fundinn sekur um brot á veðmálareglum hafi hann verið fundin sekur um að vinna ekki nægilega vel með sambandinu. Enn á eftir að ákvarða refsingu en líklegast er að leikmaðurinn verði sektaður vegna þessa. Hefði hann verið fundinn sekur um brot á regluverki enska sambandsins hefði það viljað dæma leikmanninn í lífstíðarbann. The Guardian greinir frá að enska knattspyrnusambandið mun ekki tjá sig frekar um málið fyrr en það fær að vita refsingu leikmannsins. Reikna má með að hún berist í næstu viku.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira