Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 22. júlí 2025 20:01 Sara Líf Guðjónsdóttir skrifaði færslu á facebook hópinn Mæðratips sem vakti gríðarlega mikla athygli. Aðsend „Kveikjan að öllu þessu var í raun og veru mín eigin líðan,“ segir Sara Líf Guðjónsdóttir, laganemi og flugfreyja, um færslu sem hún birti á Facebook hópinn Mæðratips og hlaut mikla athygli. Þar bauð Sara mæðrum sem hafa einangrast eða finna fyrir einmanaleika að vera með í opnum mömmuhóp og áður en hún vissi af höfðu yfir hundrað konur sent henni skilaboð.
Varð ung móðir og fjarlægðist jafnaldra Sara Líf er fædd árið 1998 og eignaðist son árið 2018. „Þá var ég aðeins nítján ára gömul og upplifði strax að ég passaði ekki beint inn í „mömmuhópana“, því ég var svo mikið yngri en flestar. Mínar vinkonur voru líka ekki lengur á sama stað og ég í lífinu og við fjarlægðumst mikið.“ Þegar Covid hófst snemma árs 2020 fann Sara einangrunina ágerast. „Allt frá árinu 2022 og til dagsins í dag hef ég eiginlega bara verið að drekkja sjálfri mér í vinnu og námi og þar af leiðandi eiginlega bara gleymt félagslífinu. Fyrr á árinu varð ég fyrir ákveðnum áföllum og fór að finna fyrir stigvaxandi vanlíðan. Þá fann ég svo sterkt hvað ég þráði að eiga hóp af vinkonum sem væru á sama stað og ég í lífinu, þá sérstaklega mæður sem væru til í að gera eitthvað saman með börnin og hefðu skilning á því hvernig það er að vera ung móðir.“ Mikilvægt að eiga vini sem eiga sameiginlega reynslu Sara segir að vissulega sé gaman og stundum mikilvægt að geta gert hluti án barnanna. „En eins og flestar mæður tengja örugglega við þá hafa barnlausu vinkonurnar mikið meiri tíma til þess að gera alls konar hluti á meðan við sem eigum börn þurfum að velja betur, þar sem börnin eru oft í íþróttum og þurfa að fara snemma að sofa og því höfum við auðvitað ekki sama frítímann.“ Sara Líf var nítján ára þegar hún eignaðist son sinn.Facebook Sara ítrekar að hún eigi margar góðar vinkonur sem hún er mjög þakklát fyrir en það skipti líka máli að eiga vini að sem geta vel tengt við það sem er í gangi í lífi hennar. „Flestar vinkonur mínar eru á öðrum stað en ég í lífinu og margar eru einmitt líka barnlausar. Það er bara eitthvað öðruvísi við það að eiga barn og mér finnst mikilvægt að tengjast fólki sem skilur það og er jafnvel til í að jafnvel hittast og gera skemmtilega hluti saman með börnin.“ Maður sér ekki það slæma á Instagram Í kjölfar áfalla og erfiðleika leitaði Sara sér hjálpar og byrjaði hjá sálfræðingi í maí sem hún segir að hafi hjálpað sér mikið. Eftir að hafa svo oft séð konur skrifa inn á Mæðratips að þær væru að leita að vinkonu fór ég að velta fyrir mér af hverju ég nýtti ekki minn eigin miðil til að gera eitthvað í þessu. Hún segir alltaf auðveldast að sýna ákveðna glansmynd á Internetinu. Við sýnum svo oft bara gleðina á samfélagsmiðlum en ekki þegar við erum grátandi á baðherberginu, einmana. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar vinkona vinkonu minnar sagði við mig að hún skildi ekki hvernig ég gæti verið svona hamingjusöm og orkumikil og vinkona mín sagði: „En þú veist, maður sér ekki það slæma á Instagram. Og það er akkúrat það, maður sér ekki raunveruleikann á Instagram, heldur yfirleitt bara gleðistundirnar. Þess vegna langaði mig að opna á þetta á mínum miðli, bæði í von um að finna sjálf góðar vinkonur sem eru á svipuðum stað og ég, sem og í von um að hjálpa öðrum mæðrum líka að skapa dýrmæta vináttu.“ Dásamleg, falleg og gríðarlega mikil viðbrögð Viðbrögðin við færslunni komu Söru sannarlega í opna skjöldu. „Ég byrjaði færsluna á að skrifa að ég ætlaði að opna fyrir að búa til lítinn sætan mömmuhóp þar sem ég bjóst alls ekki við því að svona margar mæður myndu hafa samband. Ég átti meira að segja samtal við mömmu mína þar sem ég sagði við hana að ég væri smá hrædd við að deila þessu því það myndi enginn hafa samband,“ segir Sara kímin og bætir við: „Áður en ég vissi af fóru skilaboðin að koma inn og það fullt af þeim. Ég gerði mér mjög fljótt grein fyrir því að þetta væri töluvert stærra verkefni en að stofna bara einn lítinn og sætan mömmuhóp. Viðbrögðin voru svo dásamleg og falleg og við erum greinilega margar sem höfum einangrað okkur og finnum fyrir þessum einmanaleika. Ég fékk líka mörg falleg skilaboð og ég er innilega þakklát þeim sem hafa haft samband. Bæði fyrir því að treysta mér að stofna hópana og líka fyrir að hafa þorað að senda mér skilaboð og opna sig um einmanaleikann sem margar upplifa, því það getur verið erfitt skref sérstaklega þegar maður hefur einangrað sig. Í dag hef ég sett á lista 121 sem hafa svarað og er enn þá að fara í gegnum skilaboðin,“ segir Sara meyr. Tvíeggja sverð með samfélagsmiðlana Aðspurð hvort henni finnist samfélagsmiðlar geta verið öflugt tól til þess að sporna gegn einmanaleika segir Sara: „Í raun bæði já og nei. Ég finn sjálf að með samfélagsmiðlum er hægt að eignast marga kunningja og eiga í raun samfélagsmiðlavini en í grunninn þrá flestir þessi mannlegu samskipti sem mér finnst hafa orðið erfiðari eftir að samfélagsmiðlar komu. Hér á árum áður þurfti maður að hafa fyrir því að labba yfir í næsta hús til þess að spjalla eða leika við vinkonur sínar en í dag er svo auðvelt að senda bara skilaboð eða hringja og sleppa því að hittast.“ Sara Líf starfar sem flugfreyja og kláraði BA í lögfræði í vor.Aðsend Því finnst henni einangrunin orðin meiri en áður. „Þar af leiðandi skortir gjarnan þennan mannlega þátt sem felst í því að hitta fólk, tala saman og gera skemmtilega hluti saman án þess að hafa alltaf símana með. Aftur á móti er hægt að nota samfélagsmiðla sem ákveðið tól til þess að kynnast fólki sem þú myndir ekki hitta í daglegu lífi og halda samskiptum við þá einstaklinga. En við þurfum líka að leggja á okkur vinnuna að hittast og eiga mannleg samskipti án símana,“ segir Sara Líf að lokum. Hér má nálgast upplýsingar og ráð frá Heilsuveru fyrir þá sem glíma við einmanaleika.
Geðheilbrigði Samfélagsmiðlar Facebook Mest lesið Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Lífið Ein heitasta söngkona landsins á lausu Lífið „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Lífið Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Lífið Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Lífið Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Lífið Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Lífið Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Lífið Gaf eistum kærastans gælunafn Lífið „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Lífið Fleiri fréttir Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Cosby Show-stjarna látin Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Heimsfræg lesbía á leið til landsins Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Sjá meira