Sendi sónarmynd: Tvö ákærð eftir fjárkúgun gamallar kærustu Sindri Sverrisson skrifar 11. júní 2025 08:32 Son Heung-min klappar saman lófum eftir öruggan sigur á Kúveit í gær í undankeppni HM. Getty/Chung Sung-Jun Tveir Suður-Kóreumenn, kona á þrítugsaldri og karl á fimmtugsaldri, hafa nú verið ákærð, grunuð um að reyna að kúga fé út úr Son Heung-min, fyrirliða knattspyrnuliðs Tottenham.
Samkvæmt suður-kóreskum miðlum er konan fyrrverandi kærasta Son og er hún sögð hafa sent sónarmynd og fullyrt að hún gengi með barnið hans. Konan mun á síðasta ári hafa krafið Son um peninga gegn því að hún myndi ekki segja frá því að hann ætti barnið. Maðurinn fylgdi þessari kröfu svo eftir í mars síðastliðnum og reyndi að hafa fé af Son. Í yfirlýsingu frá umboðsskrifstofu Son í maí sagði að hann væri „augljóst fórnarlamb í þessu máli“ og að brugðist yrði við með „hörðum, lagalegum aðferðum“ til að verjast þessum „kolröngu fullyrðingum“. Áfram hjá Tottenham? Son hefur skorað 173 mörk í 454 leikjum fyrir Tottenham frá því að hann kom til félagsins frá Leverkusen árið 2015. Hann skoraði þó aðeins 11 mörk í öllum keppnum á síðustu leiktíð en átti 12 stoðsendingar og vann sinn fyrsta stóra titil með Tottenham þegar liðið varð Evrópudeildarmeistari. Tottenham hefur nú skipt út stjóranum Ange Postecoglou og ætlar að ráða Thomas Frank í hans stað. Son tjáði sig lítillega um framtíð sína hjá félaginu eftir 4-0 sigur með Suður-Kóreu gegn Kúveit og sagði: „Ég á enn eitt ár eftir af samningnum mínum. Í stað þess að segja eitthvað núna þá held ég að við ættum að bíða og sjá hvað gerist. En sama hvar ég enda á að spila þá mun ég alltaf gera mitt besta, það breystist aldrei.“
Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira