Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 5. júní 2025 16:42 Leikhópurinn ásamt Benedict Andrews. Þjóðleikhúsið Jólasýning Þjóðleikhússins í ár er Óresteia eftir ástralska verðlaunaleikstjórann Benedict Andrews, sem jafnframt fer með leikstjórn sýningarinnar. Verkið byggir á sígildum þríleik Æskílosar og er flokkað sem eitt af höfuðverkum heimsbókmenntanna.
Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu segir: „Verkið hefur talað með máttugum hætti til mannkynsins, kynslóð fram af kynslóð, og á við okkur óþægilega ágengt erindi í dag.“ Ákveðið hefur verið að hrista upp í áratuga gamalli hefð og verður sýningin að þessu sinni sett upp í Kassanum, þar sem nærvera við áhorfendur og nánd við efnið fær að njóta sín til fulls. Stórskotalið leikara fer fyrir sýningunni, nánar tiltekið þau Elín Sif Hall, Hilmir Snær Guðnason, Ebba Katrín Finnsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson. Benedict Andrews hefur áður hlotið einróma lof fyrir sýningar sínar í Þjóðleikhúsinu, þar á meðal Ex, Ellen B., Macbeth og Lé konungur. Nú síðast vakti hann mikla athygli fyrir uppfærslu sína á Kirsuberjagarðinum, sem hlaut fimm stjörnur í The New York Times. Hann hefur einnig leikstýrt víða um heim, meðal annars hjá National Theatre í London, Schaubühne í Berlín og Sydney Theatre Company. Andrews hefur unnið með stórstjörnum á borð við Cate Blanchett, Gillian Anderson og Vanessa Kirby. Uppsetning hans á A Streetcar Named Desire verður sýnd í kvikmyndahúsum um allan heim – þar á meðal á Íslandi í haust.
Leikhús Þjóðleikhúsið Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi Lífið Hvers vegna teljum við alla vera að dæma okkur (þegar enginn er að fylgjast með)? Áskorun Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Lífið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira