Lífið

Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bieber á ferðinni í Los Angeles.
Bieber á ferðinni í Los Angeles. Getty/Bauer-Griffin

Justin Bieber hefur nú opinberlega staðfest að hann sé ekki meðal þeirra sem hafa sakað Sean „Diddy“ Combs um kynferðisbrot. Réttarhöld yfir Diddy hófust í síðustu viku og standa enn yfir.

Í yfirlýsingu frá talsmanni Bieber kemur fram að Bieber viðurkenni alvarleika málsins og leggi áherslu á að athyglin ætti að beinast að þeim sem raunverulega urðu fyrir skaða. 

„Þó að Justin sé ekki meðal fórnarlamba Sean Combs eru einstaklingar sem urðu fyrir raunverulegum skaða af hans völdum,“ segir í yfirlýsingunni. 

„Að beina athyglinni frá þeirri staðreynd dregur úr athygli sem þessi fórnarlömb eiga skilið.“

Diddy var handtekinn í september síðastliðnum og ákærður fyrir bæði mansal og skipulagða glæpastarfsemi. Hann hafði þá þegar verið dæmdur til að greiða meintum brotaþola á annan milljarð króna vegna kynferðisbrots 27 árum fyrr.

Í kjölfar handtöku Diddy vakti gömul myndbandsupptaka frá 2009 athygli, þar sem þá 15 ára gamall Bieber eyðir tíma með Diddy. Í myndbandinu sýnir Diddy honum meðal annars Lamborghini-bíl sinn og talar um að gefa honum bílinn þegar hann verði 16 ára. 

Þeir ræða einnig um að „ná sér í stelpur“, sem hefur vakið spurningar í ljósi núverandi ásakana gegn Diddy. 

Frá því að ásakanirnar komu fram hefur Bieber haldið sig til hlés. Hann og eiginkona hans, Hailey Bieber, eignuðust soninn Jack Blues í ágúst 2024. Bieber var nýverið á Íslandi þar sem hann dvaldi á lúxushótelinu Deplum í Fljótunum í Skagafirði. Hann sagði ferðina hafa verið þá bestu á ævinni.

Réttarhöldin yfir Diddy standa yfir og má sjá nýjustu fréttir af þeim að neðan. Hann á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér verði hann fundinn sekur.


Tengdar fréttir

Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy

Casandra Ventura, eða Cassie, söngkona og fyrrverandi kærasta, Sean „Diddy“ Combs, hefur í dag þurft að svara spurningum lögmanna Diddy, eftir að hafa svarað saksóknurum síðustu tvo daga. Lögmennirnir hafa meðal annars látið hana lesa upp kynferðisleg skilaboð sem hún sendi á Diddy í gegnum árin.

Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“

Casandra Ventura, eða Cassie, söngkona og fyrrverandi kærasta, Sean „Diddy“ Combs, bar í gær vitni í réttarhöldunum gegn tónlistarmanninum umdeilda. Þar sagði hún meðal annars frá ofbeldi sem hann beitti hana, líkamlegu, andlegu og kynferðislegu, og að hann hafi þvingað hana til að taka þátt í dagalöngum kynlífspartíum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.