Hæstánægður með að Dýrlingarnir séu ekki lélegasta lið sögunnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 10. maí 2025 23:30 Aaron Ramsdale hefur nú fallið þrisvar á ferli sínum. Hann er aðeins 26 ára. EPA-EFE/DANIEL HAMBURY Aaron Ramsdale, markvörður Southampton, var hæstánægður með stigið sem liðið sótti gegn Manchester City þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Með stiginu er ljóst að Dýrlingarnir verða ekki lélegasta lið í sögu deildarinnar ásamt Derby County.
Umræðan í kringum Southampton undanfarnar vikur, og mánuði, hefur verið hvort um væri að ræða tölfræðilega lélegasta lið í sögu deildarinnar. Hrútarnir enduðu tímabilið 2007-08 með aðeins ellefu stig eftir að vinna einn leik, gera átta jafntefli og tapa 29 leikjum. Lengi vel stefndi í að Ramsdale og félagar myndu bæta metið óeftirsótta og verða þar með slakasta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem var stofnuð 1992. Óvænt stig gegn Man City þýðir hins vegar að Southampton er komið með 12 stig og það er markvörðurinn ánægður með. „Mjög ánægður. Við erum ekki sáttir með hvernig tímabilið hefur farið en við erum sáttir með að forðast metið. Við gerum okkur fulla grein fyrir að þetta er ekki frábær stigafjöldi en í dag er stuðningsfólk okkar glatt og sólin skín,“ sagði markvörðurinn að leik loknum. „Það vita allir að þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir okkur. Þessi leikur var fyrir stuðningsfólkið og líka strákana sem hafa gefið allt í verkefnið. Það hafa verið margir þungir mánudagar eftir stór töp. Dagurinn í dag er léttir. Við sýndum fádæma einbeitingu og karakter. Hrós á strákana og hvernig þeir vörðust, við gerðum Man City erfitt fyrir.“ Southampton á útileik gegn Everton og heimaleik gegn Arsenal eftir áður en tímabilinu lýkur. Hver veit nema Dýrlingarnir næli í eins og eitt stig til viðbótar áður en haldið verður í sumarfrí.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Keflavík - Valur | Hörð barátta um efri hlutann Íslenski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Sjá meira