Enski boltinn

Klásúlan virkjuð en enn ó­víst hvort Chelsea kaupi Sancho

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Virðist enginn vilja Sancho.
Virðist enginn vilja Sancho. Jacques Feeney/Getty Images

Þrátt fyrir að það segi í samningi Chelsea og Manchester United að fyrrnefnda félagið þurfi að kaupa Jadon Sancho endi Chelsea ofar en 15. sæti í ensku úrvalsdeildinni þá er enn óvíst hvort Chelsea standi við samninginn.

Þegar Sancho var lánaður frá Manchester til Lundúna var gerður samningur milli félaganna að ef Chelsea myndi enda ofar en 15. sætið þá þyrfti það að punga út 25 milljónum punda, 4,2 milljörðum íslenskra króna, fyrir leikmanninn.

Eftir endurkomusigur Chelsea á Fulham um liðna helgi er tölfræðilega ómögulegt fyrir bláliða að enda svo neðarlega. Það er hins vegar enn alls óvíst hvort Chelsea sé tilbúið að eyða téðri upphæð í leikmann sem hefur ekki staðið undir væntingum en þó staðið sig talsvert betur en hann gerði hjá Man United.

Fari svo að Chelsea brjóti samkomulag liðanna þarf það að greiða Man United fimm milljónir punda, 848 milljónir íslenskra króna. Sancho yrði þá leikmaður Rauðu djöflana á ný, eitthvað sem hann hvorki hann né félagið hefur áhuga á.

Chelsea hefur þegar fest kaup á Geovany Quenda sem og Estevao Willian. Munu þeir ganga til liðs við félagið í sumar. Sem stendur virðist sem þeir eigi að koma í stað Sancho og Mykhailo Mudryk en sá síðarnefndi féll á lyfjaprófi og er óvíst hvenær hann getur spilað á ný.

„Ég er eingöngu að einbeita mér að síðustu níu leikjunum, það eru tveir mánuðir eftir af tímabilinu og allur minn fókus er þar. Við sjáum svo til hvað gerist í sumar. Staða Jadon hefur ekki breyst. Hvað varðar tölfræði þá gæti hann gert betur, engin spurning. Þetta snýst ekki eingöngu um Jadon, við höfum fleiri leikmenn í þessa stöðu,“ sagði Enzo Maresca, þjálfari Chelsea, eftir sigurinn á Fulham um helgina.

Hinn 25 ára gamli Sancho hefur skorað þrjú mörk og lagt upp fimm í 27 deildarleikjum. Þá hefur hann lagt upp fimm mörk í jafn mörgum leikjum í Sambandsdeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×