„Hann hefði getað fótbrotið mig“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 12. apríl 2025 22:02 Christian Norgaard bað Gabriel Martinelli afsökunar á harkalegri tæklingu. Alex Davidson/Getty Images Gabriel Martinelli, leikmaður Arsenal, vill meina að Christian Norgaard, varnarmaður Brentford, hefði átt að fá rautt spjald fyrir tæklingu sem átti sér stað í 1-1 jafntefli liðanna fyrr í dag. Norgaard fékk gult spjald fyrir og segir engan illan ásetning að baki.
Atvikið átti sér stað á 28. mínútu. Martinelli komst framhjá Norgaard en var tæklaður harkalega til jarðar. Norgaard krækti utan um löpp Martinelli. David Price/Arsenal FC via Getty Images „Ég hef ekki séð tæklinguna en, að mínu mati, ef fóturinn hefði verið á jörðinni hefði hann getað fótbrotið mig. Hann sagði við mig að þetta hafi verið óvart og ég trúi því, en samt, hann hefði getað fótbrotið mig. Fyrir mér er þetta rautt spjald. Ég þarf að sjá þetta aftur til að vera viss en mér fannst þetta gróft brot“ sagði Martinelli í viðtali eftir leik. „Það var enginn illur ásetningur að baki en þegar ég lít til baka var tæklingin töluvert harkalegri en ég ætlaði mér. Ég myndi aldrei gera þetta viljandi“ sagði Norgaard í viðtali eftir leik. Þjálfarar liðanna tóku undir með leikmönnum sínum. Mikel Arteta var ósáttur að sjá ekki rautt spjald fara á loft en Thomas Frank fannst gult spjald sanngjarnt, jafnvel heldur hart. Martinelli fótbrotnaði ekki og kláraði leikinn en Arsenal missti Thomas Partey og Jorginho af velli vegna meiðsla. Þá var Ben White einnig fjarverandi. Arteta gat ekki svarað því hvað amaði að Partey, en sagði Jorginho hafa fundið til í rifbeinum og átt erfitt með andardrátt. Hann var óviss um hvort þeir tveir og Ben White yrðu orðnir leikhæfir þegar Arsenal mætir Real Madrid næsta miðvikudag.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Fótbolti Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira