Stórstjarnan Limahl mætir í N1 höllina í september Nordic Live Events 4. apríl 2025 10:44 Nokkrir frægir erlendir listamenn, innlendir og erlendir plötusnúðar og íslenska hljómsveitin Steed Lord, með Svölu Björgvins í fararbroddi, koma fram á stórtónleikum í N1 höllinni þann 20. september. Þar mun lifandi 80´s og 90´s tónlist hljóma innan um ljósasjóv og litfagrar blöðrur. Einn svakalegasti tónlistarviðburður seinni ára fer fram í N1 höllinni í Reykjavík þann 20. september þegar 80´s og 90´s tónlist mun hljóma í lifandi útsetningu nokkurra frægra erlendra listamanna, innlendra og erlendra plötusnúða og íslensku hljómsveitarinnar Steed Lord með Svölu Björgvins í fararbroddi. „
Þetta verða alvöru tónleikar þar sem þessir frægu tónlistarmenn munu flytja sína stærstu smelli sem við þekkjum svo vel,“ segir Björgvin Þór Rúnarsson hjá Nordic Live Events sem heldur tónleikana. „N1 höllinni verður breytt í alvöru klúbb með tilheyrandi ljósasjóvi, blöðrum og fleira skemmtilegu.“ Og þetta eru engir smásmellir heldur mörg af eftirminnilegustu lögum þessara tveggja áratuga. „Sjálf stórstjarnan Limahl heimsækir okkur í fyrsta sinn en hann á eitt eftirminnilegasta lag 80´s tímabilsins, lagið Never Ending Story úr samnefndri bíómynd auk þess sem hann flytur nokkur lög Kajagoogoo en fyrsta plata sveitarinnar var svakalega vinsæl hér á landi.“ Stórstjarnan Limahl naut mikilla vinsælda á níunda áratug síðustu aldar. Hver man ekki eftir laginu Never Ending Story úr samnefndri bíómynd og fyrstu plötu Kajagoogoo. Þetta er í fyrsta sinn sem Limahl kemur fram hér á landi. Technotronic, Culture Beat, Corona og N-Trance mæta líka í hús. „Hver man ekki eftir lögum eins og Pump Up the Jam, Mr. Vain, The Rhythm of the Night og Set You Free? Þetta eru allt lög sem fá fólk til að stökkva út á dansgólfið. Og ekki má gleyma The Outhere Brothers með Boom Boom Boom og Don't Stop Wiggle Wiggle. Eins og sjá má verður þetta algjör veisla.“ Með þeim verða nokkrir erlendis og innlendir plötusnúðar. „Þar má fyrst nefna Dj Sash! sem er í raun í raun þriggja manna þýskt plötusnúða/tónlistarteymi sem hefur selt yfir 22 milljónir platna. Meðal þekktra laga þeirra Ecuador sem allir á miðjum aldri ættu að þekkja. Síðan bjóðum við upp á tvo frábæra íslenska plötusnúði sem tóku yfir senuna hér á landi á sínum tíma, þá Dadda diskó og Kidda Bigfoot. Rúsínan í pylsuendanum er svo kynnir kvöldsins sem er engin önnur en stuðdrottningin Eva Ruža. Það sér því hver maður að þetta er ávísun á ógleymanlega kvöldstund.” Steed Lord með Svölu Björgvins í fararbroddi starfað um tíu ára skeið og túraði út um allan heim. Tónlistarviðburðir á borð við þennan, þar sem eldri tónlistarkempur koma fram saman, njóta sívaxandi vinsælda um allan heim, ekki síst í Evrópu og Bandaríkjunum. „Hver vill ekki gleyma öllum áhyggjum um stund, leiða hjá sér vandamál heimsins og upplifa aftur áhyggjulausa tíma æskunnar þegar þessi tónlist hljómaði út um allt? Stuðdrottningin og gleðigjafinn Eva Ruža verður kynnir og sér til þess að gestir eigi ógleymanlega kvöldstund. Enda höfum við heyrt af áhuga fjölmargra saumaklúbba, vinahópa og árgangahópa sem ætla sér að fjölmenna næsta haust. Ef þetta tekst vel hjá okkur gætum við verið að tala um reglulegan viðburð næstu árin. “ Miðasala fer fram á midix.is og eru þrjú verð í boði. „Í fyrsta lagið er það A svæði sem er gólfið, B svæði er svalirnar á 2. hæð og VIP svæðið er á 3. hæð þar sem ýmislegt er innifalið svo sem opinn bar, léttar veitingar og hittingur og mynd með sumum stjörnum kvöldsins. Það er gaman að segja frá því að VIP miðarnir hafa fengið mest viðbrögð eftir að miðasalan hófst.“ Helstu samstarfsaðilar Nordic Live Event vegna tónleikanna eru Bylgjan, Millet og Coca Cola.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Lífið Hélt við konu besta vinar síns Lífið Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Lífið Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Bylgjulestin brunar af stað inn í sumarið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Sjá meira