Eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla sneri Erling Haaland aftur í lið Manchester City og skoraði eina markið í 0-1 sigri á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Þetta var tuttugasta mark Haalands í deildinni en hann er næstmarkahæstur á eftir Mohamed Salah hjá Liverpool.
Mark Haalands kom á 12. mínútu en hann skoraði þá af stuttu færi eftir sendingu frá Jérémy Doku. Haaland skoraði aftur í uppbótartíma en markið var dæmt af vegna hendi.
City, sem hefur orðið Englandsmeistari fjögur ár í röð, er í 4. sæti deildarinnar með 47 stig.
Tottenham, sem hafði unnið þrjá leiki í röð fyrir leikinn í kvöld, er í 13. sæti með 33 stig.