Lífið samstarf

Konudagsleikur - taktu þátt í skemmti­legri hefð

Konudagsleikur

Konudeginum fylgir falleg hefð að gleðja sína bestu konu og Vísir ætlar að leggja sitt af mörkum með skemmtilegum konudagsleik.

Við fengum BK hönnun, Píkusport, Rúmföt.is og 17 sortir til liðs við okkur til að setja saman glæsilegan gjafapakka handa heppinni konu. Til að koma ykkar konu í pottinn er hægt að skrá hana í skráningarforminu hér. Við drögum þann 24. febrúar. Glæsilega vinningana má sjá hér fyrir neðan.


BK hönnun gefur galla og garðslöngu

BK hönnun gefur glæsilegan vinnusamfesting í garðverkin og garðslöngu í stíl. Gallinn er úr teygjanlegt efni með styrkingum við hné og olnboga. Merking á baki. Svartar tölur og hægt að fjarlægja púða á hnjám. Sterkt efni – 28% linen, 33% polyester, 39% rayon. Samfestingnum er pakkað í fallega gjafaöskju úr endurunnum pappa með svörtum silkipappír. Garðslangan er létt og meðfærileg og í fallegum náttúrulegum lit sem breytir ásýndinni í garðinum.


Píkusport gefur grindarbotnsþjálfa í formi tölvuleiks

Píkusport gefur grindarbotnsþjálfann, byltingarkennda lausn til að styrkja grindarbotnsvöðva og losna þannig við hættu á leiðinlegum fylgikvillum eins og þvagleka en einnig til þess að auka unað af kynlífi. Notandinn spilar skemmtilega tölvuleiki í símanum sem hann stýrir með grindarbotnsvöðvunum. Eftir æfingarnar fær notandinn þá að sjá í fyrsta skipti nákvæmlega virkni vöðvanna, viðbragðshraða, slökun, nákvæmni, hversu mörgum grömmum hefur verið lyft og hvernig árangur eykst hratt á stuttum tíma.


Rúmföt.is gefur falleg rúmföt

Rúmfataverslunin Rúmföt.is gefur rúmföt að eigin vali að verðmæti  allt að 17.800 krónur. Í versluninni er landsins mesta úrval af hágæða rúmfötum frá virtustu vefurum í Evrópu og Asíu. Tvöhundruð tegundur af 300-1000 þráða damaski og bómullarsatíni. Það jafnast ekkert á við góðan nætursvefn í hágæða rúmfatnaði.


17 sortir gefa dásamlegt konudagsbox

Gúmmelaðiverslunin 17 sortir gefa eitt af konudagsboxunum sem fást hjá þeim. Boxið innheldur  dásamlegar bollakökur með saltkaramellu, tarte með hindberjum, lychee og rósa curd og marengs ofaná, hjarta magdalenur og naglalakk frá Essie.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.