Andrés, Daníel og Ásbjörn Íslandsmeistarar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 12. febrúar 2025 10:02 Nemarnir lögðu mikla vinnu í verkefni sín á Íslandsmeistaramóti í framreiðslu. Aðsend Það var stuð og stemning og mikil spenna í loftinu þegar Íslandsmót nema- og ungsveina í veitingagreinum fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi um helgina. Þrír hlutu Íslandsmeistaratitilinn og sköruðu fram úr í fagmennsku, nákvæmni, skapandi eiginleika og seiglu.
Andrés Björgvinsson varð Íslandsmeistari í matreiðslu, Daníel Árni Sverrisson í framreiðslu og Ásbjörn Geirsson í kjötiðn. „Keppnin er afar mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk í matreiðslu- og framreiðslugreinum þar sem reynir á fagmennsku, nákvæmni, skapandi eiginleika og seiglu. Dómarar höfðu á orði að sjaldan hefði valið verið jafn erfitt og í ár,“ segir í fréttatilkynningu. Sautján keppendur í matreiðslu Alls kepptu sautján í matreiðslu og Andrés Björgvinsson stóð uppi sem Íslandsmeistari. Nemar ársins voru Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir og Sindri Hrafn Rúnarsson. Verðlaunahafarnir brostu breitt.Aðsend „Í forrétt unnu keppendur með rauðsprettu, íslenskar rækjur og grænan aspas og í aðalrétt var verkefnið að elda grísalund og grísasíðu, jarðskokka og dökka soðsósu. Í matreiðslu var Jakob Hörður Magnússon yfirdómari og smakkdómari. Smakkdómarar voru einnig Ólöf Jakobsdóttir og Hallgrímur Friðrik Sigurðarson og eldhúsdómarar þeir Rafn Heiðar Ingólfsson og Kjartan Marínó Kjartansson.“ Viðamikil og spennandi keppni í framreiðslu Fimm kepptu í framreiðslu og stóð Daníel Árni Sverrisson uppi sem Íslandsmeistari í greininni. Nemar ársins voru Tristan Tómasson og Silvía Louise Einarsdóttir. „Verkefnin voru viðamikil og hefðbundin að vanda. Nemar drógu um tvo kokteila, spreyttu sig á vínpörun, dekkuðu fyrir fjögurra rétta kvöldverð, unnu blómaskreytingu, gerðu tíu mismunandi servíettubrot, greindu 10 mismunandi glös af styrktum vínum og umhelltu víni. Glæsilegir drykkir.Aðsend Þá þurftu keppendur að sýna fram á færni á fyrirskurði og diska upp fyrir framan dómara. Auk þess að sýna ávaxtaskurð og eldsteikingu. Dómarar voru Sigurður Borgar Ólafsson og Axel Árni Herbertsson.“ Vandað til verka í kjötiðn Tveir kepptu í kjötiðn og varð Ásbjörn Geirsson Íslandsmeistari og nemi ársins var Friðrik Björn Friðriksson. Keppt í kjötiðn.Aðsend „Keppendur í kjötiðn vönduðu til verka og fengu gæðahráefni í hendur. Verkefnin fólu í sér að verka lambalæri, lambahrygg, ½ frampart, 1 stk. grísaframpart, 1 stk. nautamjöðm, 1 stk. nautaframhrygg og 1 stk. Kjúkling sem keppendur áttu að vinna eftir eigin hugmyndum. Dómarar í kjötiðn voru Stefán Einar Jónsson og Jóhannes Númaso.“ Hér má sjá fleiri myndir frá Íslandsmótinu: Þátttakendur voru í stuði.Aðsend Vandað til verka.Aðsend Sáttir sigurvegarar.Aðsend Gleðin var við völd.Aðsend Sáttur sigurvegari.Aðsend Flottur hópur.Aðsend Verið að gera og græja.Aðsend Matargerð er mikil listgrein.Aðsend Glæsilegir diskar.Aðsend
Matur Drykkir Kokteilar Mest lesið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Öryrki um þrítugt vegna verkja en lyfjalaus í dag Lífið Draumurinn rættist en honum fylgdi skömm Lífið Móðirin ósátt við veru sonarins í Hvíta húsinu Lífið Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti Tónlist Tilhugsun um kynlíf á ný óbærileg Lífið Bauð Bandaríkin velkomin í hóp konungsríkja Bíó og sjónvarp Kingdom Come Deliverance 2: Geggjuð fyrirsögn um geggjaðan leik Leikjavísir Forsetahjónin mættu á frumsýningu Sigurvilja Lífið „Ég gerði ein mistök, eða tvö“ Lífið Fleiri fréttir Andrés, Daníel og Ásbjörn Íslandsmeistarar Maturinn á boðstólnum yfir Super Bowl Ofurfæðis súkkulaðikaka slær í gegn í skammdeginu Vegan próteinbomba að hætti Kolbeins Arnbjörnssonar Kraftmikill grænn safi fyrir öfluga húð Sjá meira