Viska skilaði 43 prósenta ávöxtun eftir mikinn meðvind á rafmyntamörkuðum
![Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Visku, segist spá því að „bandarískur Bitcoin varaforði verði að raunveruleika á árinu sem mun hafa jákvæð áhrif á verðþróun Bitcoin.“](https://www.visir.is/i/592C6FE82C196E33A57FAA6E0E5BB1CAE236822B57330BF566F9F8223309907E_713x0.jpg)
Á öðru heila rekstrarári Visku Digital Assets, sem einkenndist af metinnflæði í Bitcoin-kauphallarsjóði og breyttu viðhorfi stofnanafjárfesta til rafmyntamarkaða, skilaði fagfjárfestasjóðurinn ríflega 43 prósenta ávöxtun. Á árinu 2025 eru væntingar um að Bitcoin fái aukið vægi hjá stofnanafjárfestum, að sögn sjóðstjóra Visku, jafnframt því sem búast má við miklu frá nýjum yfirvöldum í Bandaríkjunum, meðal annars að settur verði á fót varaforði í Bitcoin.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/5926177DDD0CC8777FAB73207C019B0C52BBA872CBA51FE91FD1A1F784FC7691_308x200.jpg)
Rafmyntasjóður hækkaði um 71 prósent á þremur mánuðum og á „mikið inni”
Rafmyntasjóður Visku hækkaði um 70,5 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, nokkuð meira en sem nemur hækkun rafmyntanna Bitcoin og Ethereum. Sjóðstjórar félagsins telja að markaðurinn „eigi mikið inni” og benda á það styttist í að þvingaðar sölur þrotabúa á rafmyntum ljúki og „erfitt að sjá hvaða markaðsaðilar taki við sölukeflinu.“
![](https://www.visir.is/i/F1E17EE555D873382A3C30130D8837F1D50E9C16D09CB82CA5BA46A5FDE298D1_308x200.jpg)
Bitcoinsjóðir stærri en lífeyriskerfið en prófessor segir hnignunarfasa að hefjast
Umfang bitcoin kauphallarsjóða, sem hafa einungis verið starfræktir í tvo mánuði, er orðið meira en allt íslenska lífeyriskerfið, segir fjárfestir í rafmyntum sem furðar sig á áhugaleysi fyrirtækja í fjármálageiranum hér á landi. Hagfræðiprófessor telur að fái bitcoin ekki „almennilega notkun“ í framtíðinni verði það verðlaust og líkir slíkum fjárfestingum við kaup á frímerkjum.