Fótbolti

Þjálfari AC Milan um lætin í gær: Þetta er ekki kirkja

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sergio Conceicao er nýtekinn við liði AC Milan og leikmenn liðsins eru þegar farnir að kynnast því hversu blóðheitur Portúgalinn er.
Sergio Conceicao er nýtekinn við liði AC Milan og leikmenn liðsins eru þegar farnir að kynnast því hversu blóðheitur Portúgalinn er. Getty/Claudio Villa

Sergio Conceicao, þjálfari AC Milan, ræddi lætin sem urðu í leik liðsins í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Þegar liðið fagnaði sigurmarki lenti honum saman við einn leikmann sinn.

AC Milan vann þarna dramatískan 3-2 sigur á Parma eftir að hafa skorað tvö mörk í uppbótatíma. Það urðu í framhaldinu læti á milli þjálfarans og eins leikmanns hans. Þjálfarinn var spurður út í lætin eftir leik.

Þegar AC Milan skoraði sigurmarkið þá hljóp allur bekkurinn af stað til að fagna markinu. Þá þurfti allt í einu að skilja á milli Sergio Conceicao og leikmanns hans Davide Calabria. Conceicao hafði skömmu áður tekið Calabria af velli.

Leikmönnum og starfsmönnum AC Milan tókst að skilja á milli þeirra. Conceicao var mjög ósáttur með Calabria og reyndi að komast aftur að honum.

„Ég hegða mér í leikjunum eins og ég upplifi þá og hvernig mér líður. Það er með mikið af ástríðu og löngun til að vinna,“ sagði Sergio Conceicao eftir leikinn.

„Í lokin var aðeins of mikið af adrenalíni í gangi og ég vildi ræða ákveðna hluti við Davide. Að mínu mati var sagt oft mikið,“ sagði Conceicao.

„Leikmenn mínir vita hversu miklu máli þeir skipta mig. Þetta er eins og fjölskylda. Ef ég er staddur á veitingastað og sonur minn gerir eitthvað sem ég er ekki sáttur við þá læt ég hann vita af því. Það er engin uppgerð að minni hálfu,“ sagði Conceicao.

„Þetta var ekki gaman að sjá en þetta er í lagi sem hluti af fótboltanum. Þetta er ekki kirkja,“ sagði Conceicao.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×