Innlent

Ætla að breytast í stjórn­mála­flokk á fyrsta lands­fundinum í sex ár

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Inga Sæland í Hafnarborg í desember þar sem formenn stjórnmálaflokkanna Samfylkingarinnar og Viðreisnar auk félagasamtakanna Flokks fólksins kynntu ríkisstjórnarsamstarf sitt.
Inga Sæland í Hafnarborg í desember þar sem formenn stjórnmálaflokkanna Samfylkingarinnar og Viðreisnar auk félagasamtakanna Flokks fólksins kynntu ríkisstjórnarsamstarf sitt. Vísir/Vilheml

Formaður Flokks fólksins segir að til standi að breyta skráningu flokksins úr félagasamtökum í stjórnmálaflokk á landsfundi í febrúar. Fundurinn verður sá fyrsti hjá flokknum í sex ár. Flokkurinn sé ekki á flæðiskeri staddur þegar komi að peningum.

Inga Sæland segir að flokkurinn muni sennilega ekki fá styrk úr ríkissjóði nú í janúar eins og aðrir stjórnmálaflokkar á Alþingi vegna þess að flokkurinn er skráður sem félagasamtök. Lögum um úthlutanir hafi verið breytt árið 2022 þannig að stjórnmálaflokkar þyrftu að vera skráðir sem slíkir. Til hafi staðið að breyta samþykktum flokksins, svo hann væri skráður sem slíkur, á landsfundi í nóvember en honum hafi þurft að fresta.

„Það hefði í raun aldrei komið til þessa hefðum við getað haldið landsfundinn sem átti að halda í nóvember síðastliðnum. Það gerðist dulítið þá í samfélaginu þannig að þessi landsfundur verður ekki fyrr en í febrúar. Þetta er bara formgalli sem verður leiðréttur,“ segir Inga.

Vísar hún þar til kosninga sem boðað var til í nóvember eftir að ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna var slitið í haust.

Morgunblaðið greindi frá því í morgun að Flokkur fólksins hefði þegið 240 milljónir króna í styrkjum til stjórnmálaflokkur án þess að vera slíkur. Flokkur fólksins væri enn skráður sem „félagasamtök“. 

Óvíst er hvort flokkurinn fái tugi milljóna í styrk fyrir árið 2025 í janúar. Inga væntir þess ekki að fá peningana.

„Við höfum engar áhyggjur af þessum peningum. Við erum á engu flæðiskeri stödd hvað þetta varðar. Þetta hefur ekki verið leiðrétt af því það þarf landsfund til. Það þarf aðalfundinn okkar til að heimila breytingar á samþykktum flokksins. Það verður gert í febrúar.“

Inga bendir á að vandamálið snúi að lagabreytingu sem hafi orðið til árið 2022. Frá og með þeim tíma hafi verið gerð ríkari krafa til skráninga stjórnmálaflokka til að tryggja upplýsingaskyldu flokkanna.

„Þetta er samkvæmt lagabreytingu sem kom árið 2022. Við höfum ekki haldið landsfund síðan. Þetta er formgalli sem er óheppilegur en ekkert mál. Við lögum þetta með bros á vör.“

Raunar hefur Flokkur fólksins, sem stofnaður var í eldhúsinu heima hjá Ingu árið 2016, ekki haldið landsfund síðan árið 2019. Þetta verður því fyrsti landsfundur flokksins í sex ár. Flestir stjórnmálaflokkar halda slíka fundi annaðhvert ár þar sem formaður endurnýjar umboð sitt og kosið er í aðrar stöður innan flokksins.

Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason fyrrverandi þingmenn flokksins gagnrýndu árið 2019 að Inga væri formaður flokksins og gjaldkeri og færi með prófkúru flokksins.

„Ég tel ekki for­svar­an­­­legt að for­­­maður stjórn­­­­­mála­­­flokks sitji yfir fjár­­­reiðum hans með því að vera jafn­­­framt pró­kúru­hafi og gjald­keri flokks­ins. Þá get ég heldur ekki sætt mig við að opin­beru fé sé varið til launa­greiðslna í þágu nán­­­ustu fjöl­­­skyld­u­­­með­­­lima stjórn­­­­­mála­­­leið­­­toga. Lands­lög kveða skýrt á um vand­aða með­­­­­ferð þeirra fjár­­­muna sem stjórn­­­­­mála­­­flokkar þiggja úr almanna­­­sjóðum og er mik­il­vægt að eftir þeim sé far­ið,“ sagði Karl Gauti í aðsendri grein í Morgunblaðinu árið 2019.

Inga svaraði því til í samtali við Heimildina að Ólafur og Karl Gauti væru fullir af hefnigirni eftir að hafa verið vísað úr flokknum. Hún hefði vissulega verið allt í öllu hjá Flokki fólksins fyrstu árin en Jónína Björk Óskarsdóttir hefði svo tekið við sem gjaldkeri í desember 2018.

„Það er mjög traust og öflugt utanumhald utan um Flokk fólksins. Hann hefur vaxið fallega, það er bara bjartsýni og bros hér,“ sagði Inga nýkjörinn félags- og húsnæðismálaráðherra að loknum ríkistjórnarfundi í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×