Tónlist

Frum­sýning á Vísi: Ferða­lag um nætur­himininn með Kára Egils

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Kári Egilsson er meðal athyglisverðustu tónlistarmönnum Íslands.
Kári Egilsson er meðal athyglisverðustu tónlistarmönnum Íslands. Vísir/Vilhelm

Tónlistarmaðurinn Kári Egilsson gefur í dag frá sér nýtt lag Midnight Sky. Lagið er af nýrri plötu Kára sem kemur út í mars. Með laginu fylgir tónlistarmyndband sem er eftir listakonuna Diddu Flygenring og byggir á sögu lagsins. 

Að sögn Kára fjallar lagið um son geimfara sem bíður eftir því að pabbi sinn komi aftur heim. Lag og texti eru eftir Kára og er lagið unnið með upptökumanninum Alberti Finnbogasyni.

„Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ hefur tónlistarmaðurinn áður sagt í samtali við Vísi. Kári vakti athygli fyrir útgáfu plötunnar Palm Trees In The Snow, sem kom út árið 2023 og var hann valinn Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2024.

Kári sagði það mikinn heiður þó það hefði verið yfirþyrmandi á sama tíma. Hann er nú í námi við Berklee tónlistarháskólann í Boston og um helgina, á laugardagskvöld, mun hann halda tónleika í Iðnó með hljómsveit sinni áður en hann fer aftur út til Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

„Pínu erfitt fyrir viðkvæman listamann“

„Maður getur nálgast ýmsar tilfinningar í gegnum tónlistina, stundum góðar stundum slæmar,“ segir tónlistarmaðurinn Kári Egilsson, sem er nýkominn heim frá Englandi þar sem hann kom fram á hátíðinni Great Escape. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðastliðið ár í lífi Kára en hann vinnur nú að annarri plötu sinni og frumsýnir splunkunýtt tónlistarmyndband hér í pistlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.