Amorim: Southampton mun kenna mér meira en Liverpool og Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2025 20:00 Ruben Amorim vill sjá sömu einbeitingu hjá sínum mönnum á móti Southampton og þeir sýndu á móti Liverpool og Arsemal. Getty/Julian Finney Mancester United hefur staðið sig vel á móti stórliðum Liverpool og Arsenal í síðustu leikum en Ruben Amorim segir að næsti leikur á móti Southampton muni þó segja honum meira um hans leikmenn.
United gerði 2-2 jafntefli við Liverpool á útivelli í ensku úrvalsdeildinni og vann Arsenal síðan í vítakeppni á útivelli í ensku bikarkeppninni. Næst á dagskrá er deildarleikur á móti Southampton á Old Trafford. Amorim segist ætla að fylgjast vel með því hvernig hans leikmenn mæta til leiks í leik sem liðið á að vinna. ESPN segir frá. „Ég held að næsti leikur munu kenna mér meira um mína leikmenn en síðustu tveir,“ sagði Ruben Amorim á blaðamannafundi fyrir leikinn. „Ég bíð spenntur eftir því að sjá hvernig við munnum spila á móti Southampton. Það kemur allt í ljós á fimmtudaginn,“ sagði Amorim. „Það voru engar væntingar gerðar til okkar í síðustu tveimur leikjum. Enginn bjóst við neinu en núna eru allir að búast við því að við spilum vel og vinnum. Það mun kenna mér og sýna mér meira um mína menn,“ sagði Amorim. United hefur ekki unnið heimaleik í meira en mánuð eða síðan liðið vann Everton 1. desember síðastliðinn. Síðustu þrír leikir á Old Trafford hafa tapast og félagið hefur ekki tapað fleiri heimaleikjum í röð í efstu deild síðan fyrir seinni heimsstyrjöld (1930). Amorim vildi ekkert ræða Marcus Rashford þegar hann var spurður út í það hvort Rashford myndi spila á móti Southampton. „Ég vil bara vinna. Mín einbeiting er öll á sigur á morgun. Ég mun því velja þá leikmenn sem ég tel að munu skila mér þessum sigri,“ sagði Amorim.
Enski boltinn Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti City marði Coventry Enski boltinn Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira